Ríkið hefur á síðasta áratug greitt samtals meira en 438 milljónir króna vegna mála sem tengjast uppsögnum eða brottrekstri opinberra starfsmanna. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn á Alþingi um bætur og málskostnað vegna starfsmannahalds ríkisins á árunum 2015 til 2024.
Alls voru 55 mál á tímabilinu sem féllu undir þennan málaflokkflokk. Þar af voru greiddar bætur upp á 320 milljónir króna, auk 57 milljóna króna í vexti. Þá greiddi ríkið 54 milljónir króna í málskostnað og tpælega 7 milljónir vegna gjafsóknar og útlagðs kostnaðar.
Þrjú mál kostuðu 104 milljónir 2016
Fjárhæðirnar sveiflast verulega milli ára. Mest greiddi ríkið árið 2016, alls rúmar 104 milljónir króna í tengslum við þrjú mál. Þá voru einnig verulegar greiðslur árið 2018, þegar útgjöld vegna uppsagna námu yfir 49 milljónum króna, og árið 2022 þegar þau fóru yfir 51 milljón.
Árið 2024, sem er síðasta ár tímabilsins, greiddi ríkið samtals 45,5 milljónir króna í tengslum við fimm mál sem vörðuðu uppsagnir eða brottrekstur starfsmanna.
Samtals leiddu 105 mál til bóta eða kostnaðar fyrir ríkissjóð vegna starfsmannamála á tímabilinu, þar af voru 55 vegna uppsagna, 40 tengdust einelti, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningum og 10 sneru að ólögmætum ráðningum.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram fyrirspurnina.