Í nýrri skýrslu TALIS fyrir árið 2024 kemur fram að aðeins 19% íslenskra kennara telja störf þeirra metin í samfélaginu. Til samanburðar er þetta hlutfall 48.5% í Danmörku og 48% í Finnlandi. Hins vegar er hlutfallið enn lægra í Svíþjóð en Íslandi, eða 14,7%.
TALIS er alþjóðleg rannsókn sem OECD (Efnahags- og framfarastofnunin) stendur fyrir. Hún er stærsta samanburðarrannsókn heims á viðhorfum og starfsumhverfi kennara og skólastjórnenda í grunn- og framhaldsskólum. Mennta- og barnamálaráðuneytið er aðili að rannsókninni hér á landi.
Samkvæmt skýrslunni eru kennarar á Íslandi meðal þeirra óánægðustu í OECD með launakjör sín, aðeins 19% segjast ánægðir með laun á meðan hlutfallið innan OECD er 33%.
Starfsánægja með kennarastarfið er sterkasti einstaki forspárþátturinn um hvort kennarar hyggist yfirgefa starfið. Kennarar með háa starfsánægju eru 80% ólíklegri til þess að ætla að hverfa úr starfi á næstu fimm árum. Þetta undirstrikar að áhersla stefnumótunar þarf að beinast að því að gera kennarastarfið sjálfbært og aðlaðandi í gegnum allan starfsferilinn, ekki aðeins við nýliðun.
Aldursdreifing kennara veldur áhyggjum. 38% kennara eru fimmtíu ára eða eldri en aðeins 7,6% undir þrítugu, sem bendir til áskorana í nýliðun. Þar að auki kenna margir kennarar greinar sem ekki voru hluti af menntun þeirra, og einungis helmingur nýrra kennara telur að menntunin hafi undirbúið þá vel fyrir faggreinar.
Þrátt fyrir mikla þátttöku í starfsþróun, segja aðeins 57% kennara að hún hafi haft jákvæð áhrif á kennslu þeirra. Þá telja aðeins 19% kennara að störf þeirra séu metin í samfélaginu – mun minna en í nágrannalöndum eins og Danmörku og Finnlandi.
Hér má finna ítarlega skýrslu um niðurstöðurnar fyrir Ísland.