Nýliðinn septembermánuður var hlýr á landinu öllu, að því er fram kemur í nýrri samantekt Veðurstofu Íslands. Meðalhiti í Reykjavík og á Akureyri er sagður yfir bæði meðallagi áranna 1991 til 2020 og meðalhita síðustu tíu ára. Um leið var nokkur vætutíð víða.
Þá kemur fram að sólskinsstundum hafi verið misskipt á milli suður og norðurhluta landsins. Í Reykjavík hafi mælst 145,7 sólskinsstundir sem sé 27,4 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri hafi sólskinsstundirnar hins vegar bara verið 81,3, sem sé 9,2 stundum undir meðallagi.
„Austan- og suðaustanáttir voru ríkjandi í mánuðinum. Sérlega úrkomusamt var á Austfjörðum og á Ströndum og þar var mánuðurinn víða með blautari septembermánuðum sem vitað er um,“ segir í samantektinni.
Fram kemur að meðalhiti septembermánaðar hafi verið 9,3 stig í Reykjavík. Það sé 0,7 stigum yfir meðallagi í september árin 1991 til 2020 og 0,8 stigum yfir meðallagi undanfarins áratugar.
Á Akureyri hafi meðalhitinn verið 8,7 stig sem sé 0,7 stigum yfir meðallagi 1991 til 2020 og 0,6 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára.
Þá hafi meðalhiti mánaðarins verið 8,9 stig í Stykkishólmi og 9,8 stig á Höfn í Hornafirði.
Mestur meðalhiti í mánuðinum mældist 10,6 stig á Steinum undir Eyjafjöllum, en lægstur 2,5 stig á Þverfjalli. Lægsti meðalhiti í byggð mældist svo 6,2 stig í Svartárkoti.
Þá kemur fram að mesti hiti mánaðarins hafi verið 20,1 stig í Árnesi og Skálholti fyrsta dag mánaðarins, en lægstur hafi hitinn mælst þegar 7,6 stiga frost var á Hólasandi 0. september.
Í byggð hafi orðið kaldast þegar sló í 6,3 stiga frost á Hólum í Dýrafirði og Grímsstöðum á Fjöllum, sömuleiðis þann tuttugasta.
Úrkoma víða yfir meðallagi
„Mánuðurinn var úrkomusamur á Norður- og Austurlandi. Í þeim landshlutum var úrkoman vel yfir meðallagi.“
Úrkoma í Reykjavík mældist 94,4 millimetrar sem sagt er um 10 prósent umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri hafi svo mælst 77,5 mm sem sé um 45 prósent umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þá hafi úrkoma í Stykkishólmi mælst 95,0 mm, eða 22 prósentum yfir meðallagi.
„Sérlega úrkomusamt var á Austfjörðum og á Ströndum og þar var mánuðurinn víða með blautari septembermánuðum sem vitað er um.“
Á Dalatanga hafi verið meira en tvöföld meðalúrkoma í september og sú næstmesta sem mælst hefur þar í septembermánuði frá upphafi mælinga 1938, 399,6 millimetrar.
„Úrkoman mældist líka óvenjumikil á sjálfvirku veðurstöðvunum á Austfjörðum, t.d. á Fáskrúðsfirði (560,2 mm) og í Neskaupstað (472,6 mm) sem er með mestu septemberúrkomu sem þekkist á þeim stöðvum.“
Vætutíð mánaðarins hafi fylgt talsverðir vatnavextir og eitthvað um skriður og grjóthrun, mest á Austfjörðum.
„En einnig gerði talsverð vatnsveður á Ströndum, á Vestfjörðum og á Suðausturlandi í mánuðinum. Mikið vatnsveður gerði í hvassviðri sem gekk yfir landið þ. 26. og þá fór t.a.m. þjóðvegur 1 í sundur á löngum kafla við Jökulsá í Lóni og víðar flæddi yfir vegi.“
Sumarið allt um og yfir meðallagi
Þá kemur fram í samantekt Veðurstofunnar að meðalhiti yfir sumarið allt, þar sem horft er til mánaðanna júní til septembers, hafi verið rétt yfir meðallagi hvað hitastig varði og sums staðar vel fyrir meðaltali úrkomu.
„Meðalhiti sumarsins var 10,5 stig í Reykjavík. Það er 0,3 stigum yfir meðallagi sumranna 1991 til 2020 og 0,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu sumra. Meðalhiti sumarsins í Reykjavík er í 22. til 23. hlýjasta sæti á lista 155 ára.“
Á Akureyri hafi meðalhiti sumarsins verið 10,6 stig, eða 0,7 stigum yfir meðallagi 1991 til 2020 og 0,5 stigum yfir meðallagi undanfarinna tíu sumra. Þar raðist sumarmeðalhitinn í 18. hlýjasta sæti á lista 145 ára.
Úrkoma í Reykjavík í sumar hafi verið nærri meðallagi áranna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára, en á Akureyri hafi sumarúrkoman reynst 29 prósentum yfir meðallagi 1991 til 2020 og tíu prósentum yfir meðallagi undanfarins áratugar.
Sólskinsstundir sumarsins reyndust svo heldur undir meðallagi 1991 til 2020, bæði í Reykjavík og á Akureyri, 18,6 stundum undir meðallagi fyrir sunnan og 9,4 stundum færri fyrir norðan.
Skýringarmyndir og nánari útlistun með tilliti til loftþrýstings og fleiri þátta má finna á vef Veðurstofunnar.