Kjötframleiðsla í ágúst 2025 var samtals 1.849 tonn, jafn mikil og í ágúst á síðasta ári, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.
„Nautakjötsframleiðslan var hins vegar 7 prósent minni en á móti var óvenju miklu slátrað af hrossum í ágúst eða 922 gripum,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Þá kemur fram í tölunum að tæplega 539 þúsund alifuglum hafi verið ungað út til kjötframleiðslu, en það sé aukning um rúm þrjú prósent frá því í ágúst í fyrra.
Lesa má úr gögnum Hagstofunnar að fyrstu átta mánuði ársins hafi verið framleidd 4.543 tonn af svínakjöti, 6.872 tonn af alifuglakjöti og 2.956 tonn af nautakjöti.