Hátt í þúsund fátækar mæður á unglingsaldri og börn þeirra njóta góðs af fjárstuðningi í tengslum við verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda sem Ísland fjármagnar. Í frétt utanríkisráðuneytisins kemur fram að stúlkurnar noti stuðninginn til að skapa lífsviðurværi fyrir sig og börn sín.
„Með verkefninu er freistað að rjúfa þann vítahring sem ungar mæður og börn þeirra festast í.“
Ísland hefur frá því í lok árs 2024 verið bakhjarl verkefnis Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um stuðning við ungar mæður og börn þeirra í Úganda.
„Verkefnið ber yfirskriftina „Valdefling unglingsmæðra og barna þeirra – tveggja kynslóða nálgun“. Þar er sjónum beint að unglingsmæðrum í tveimur héruðum í vesturhluta landsins, Kyegegwa og Kikuube, og þær aðstoðaðar við að brjótast úr fátækt um leið og ung börn þeirra fá þjónustu sem stuðlar að þroska þeirra og framförum.“
Fram kemur að um þriðjungur þeirra sem njóti þjónustunnar séu flóttafólk.
Utanríkisráðuneytið segir að Pálína Matthíasdóttir, deildarstjóri tvíhliðadeildar þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins, hafi verið í Úganda fyrr í mánuðinum og meðal annars kynnt sér framgang UNICEF-verkefnisins með heimsókn til Kikuube.
„Margar þessara ungu mæðra sem við hittum höfðu átakanlega sögu að segja, ekki síst þær sem flúið hafa átakasvæðin handan landamæranna að Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Stuðningurinn, sem bæði þær og börn þeirra fá í gegnum verkefnið, hefur þegar hjálpað þeim að koma undir sig fótunum og hefja nýtt og betra líf,“ segir Pálína.
Ráðuneytið segir að í gegnum verkefnið fá þúsund unglingsmæður í héruðunum tveimur fjárstuðning sem nemi um átján þúsund krónum. Stuðningurinn sé greiddur út í nokkrum greiðslum yfir eitt ár. Hluti hans fari í sparnað sem stúlkurnar fái þegar verkefninu lýkur.
„Fjármunina nota þær svo til að hefja aftur nám, afla sér hagnýtrar verkkunnáttu eða kaupa búfénað eða aðgang að ræktarlandi til að hefja framleiðslu sem þær geta selt.“
Leikskóli á hjólum
Jafnframt er leikskólaþjónusta og annar stuðningur fyrir börn þessara ungu mæðra sagður mikilvægur liður í verkefninu. Hluti af þeim aðgerðum sé nokkurs konar leikskóli á hjólum sem ferðist á milli staða þar sem ungu mæðurnar sæki sér þjónustu og sérþjálfað fólk sjái svo um kennslu, leiki og söngva sem stuðli að þroska barnanna.
„Það var afskaplega skemmtilegt að sjá leikskólann renna í hlaðið og hefja dagskrána. Börnin sungu hástöfum og tóku mjög virkan þátt í því sem fram fór og greinilegt að þau skemmtu sér konunglega. Á meðan gátu mæðurnar sótt sér fræðslu og annan stuðning,“ segir Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala.
Eins feli verkefnið í sér skimanir fyrir fötlunum og þroskaskerðingum hjá sjö þúsund börnum.
„Í raun er um að ræða ungbarnaeftirlit, svipað og íslenskir foreldrar þekkja vel, en er ekki sjálfsögð þjónusta hér í Úganda. Við sáum til dæmis unga fimm barna móður koma með nokkurra mánaða dóttur sína í skoðun. Litla stúlkan reyndist alvarlega vannærð, eins og því miður er nokkuð algengt meðal flóttafólks frá Kongó. Fyrir tilstuðlan verkefnisins tókst að greina vandann og hefja strax viðeigandi meðferð,“ segir Pálína.
Fram kemur í umfjöllun ráðuneytisins að unglingsmæður og börn þeirra séu einstaklega berskjaldaður hópur í Úganda og víðar. Ein af hverjum fjórum stúlkum á aldrinum 15 til 19 ára sé annað hvort þunguð eða þegar orðin móðir og mörg dæmi séu um ennþá yngri stúlkur sem eignist börn.
„Þessum hópi er sérstaklega hætt við að festast í fátæktargildru sem erfist síðan frá einni kynslóð til annarrar. Með samstarfsverkefni UNICEF og Íslands er þess freistað að rjúfa þennan vítahring sem unglingsmæður í Úganda eru fastar í.“