Orka hlýtur alþjóðleg markaðsverðlaun

Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Jens Nørgaard-Offersen, Guðlaugur Aðalsteinsson og Haukur Viðar Alfreðsson.
Starfsmenn Cirkus: Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Jens Nørgaard-Offersen, Guðlaugur Aðalsteinsson og Haukur Viðar Alfreðsson. Mynd/Ölgerðin

Íslenski orkudrykkurinn Orka og auglýsingastofan Cirkus unnu til verðlauna sem „Breakout Brand“ á AdAge-verðlaunahátíðinni í Chicago í Bandaríkjunum. Verðlaunin voru veitt í flokknum „ROI – Work that Works“ sem snýr að árangurstengdri markaðsvinnu.

Drykkir Orku frá Ölgerðinni. Mynd/Ölgerðin

Fram kemur í tilkynningu að þrjár bragðtegundir Orku hafi verið í sviðsljósinu á hátíðinni. Orange Ink, innblásin af húðflúrmenningunni, Engill, unninn í samstarfi við tónlistarmanninn Flona og svo Reykjavik Roses, bragðtegund þróuð með samnefndu fatamerki.

Fjöldi vörumerkja er sagður eiga fulltrúa á hátíðinni, þar á meðal McDonald’s, Levi’s, Paramount, Dove, United Airlines, Hasbro og Chicago Bulls.

„AdAge er eitt virtasta fagtímarit auglýsingageirans, en það hefur verið gefið út síðan árið 1930. Árlega veitir tímaritið viðurkenningar til þeirra sem þykja skara fram úr á sviði markaðsmála, tækni og afþreyingar og því mikill heiður fyrir Ölgerðina að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun.“

Davíð Sigurðsson, orkumálastjóri hjá Ölgerðinni, segir verðlaunin vera mikinn heiður fyrir fyrirtækið og þennan upphaflega Orku-drykk Íslendinga. 

„Meðbyrinn með Orku hefur vaxið jafnt og þétt og söluaukningin sýnir það svart á hvítu. Orka er að vaxa um 45 prósent á milli ára, ofan á 66 prósenta vöxt árið á undan og það segir allt um þær góðu viðtökur sem drykkurinn er að fá.  Þá er vörumerkið orðið einskonar sköpunarvettvangur ólíks listafólks sem kemur með beinum hætti að þróun drykkjanna, umbúða og Orku-heimsins,“ segir hann. „Það er fjölmargt ungt og efnilegt listafólk sem á þessi verðlaun með okkur – áfram íslensk list og grasrót!“

Þá segir Guðlaugur Aðalsteinsson hjá Cirkus ótrúlega ánægjulegt að sjá íslenskt vörumerki ná svo langt á alþjóðlegum vettvangi.

„Við erum stolt af samstarfinu við Orku og því hvernig hugmyndir sem spretta úr íslenskri menningu og sköpun geta fengið alþjóðlega viðurkenningu,“ segir Guðlaugur.

 Nánar má lesa um verðlaun Orku hér á vef AdAge.