Níutíu grunnskólar eru skráðir til leiks í Svakalegu lestrarkeppnina sem hófst í síðustu viku og stendur til 15. október næstkomandi. Fjallað eru um keppnina í frétt Menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneytisins og í tilefni af henni leitað til ráðherra ríkisstjórnarinnar um uppáhaldsbækurnar sem þeir lásu í æsku.
List fyrir alla er verkefni á vegum ráðuneytisins sem ætlað er að velja og miðla listviðburðum og menningu til barna og ungmenna óháð búsetu og efnahag. Í umfjöllun ráðuneytisins kemur fram að Svakalega lestrarkeppnin sé eitt verkefnanna sem List fyrir alla styður. Keppnin á að hvetja börn í 1. – 7. bekk til að lesa meira.
„Keppnin hófst formlega í síðustu viku og stendur til 15. október, en 90 grunnskólar eru skráðir til leiks. Barnabókahöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir eru upphafskonur og verkefnastýrur verkefnisins.“
Á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember næstkomandi, verður svo tilkynnt um sigurvegara keppninnar í sjónvarpsþættinum Málæði á RÚV.
Í umfjölluninni er bent á að mikið sé til af frábærum barnabókum á íslensku. Ein hugmynd að skemmtilegu lesefni geti verið að leita til vina og vandamanna um hugmyndir og á þeim nótum voru ráðherrar ríkisstjórnarinnar beðnir um að deila uppáhaldsbarnabókum sínum frá því að þeir voru í grunnskóla.
Uppáhaldsbækur ráðherranna:
- Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra
Jón Oddur og Jón Bjarni (1974) eftir Guðrúnu Helgadóttur er í uppáhaldi. Sú barnabók sem hafði hvað mest áhrif á Loga var Bróðir minn ljónshjarta á meðan Tinni í Tíbet fékk flestar flettingar – og fær enn reglulega þó það sé mest megnis vegn myndanna. - Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra
Blómin á þakinu (1985) eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. - Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra
Ronja ræningjadóttir (1981) eftir Astrid Lindgren í þýðingu Helgu Kress. - Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
Geimstöðin í seríunni Ævintýri Tom Swift (1960) eftir Victor Appleton í þýðingu Skúla Jenssonar. - Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra
Alli, Nalli og Tunglið (1929) eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur. - Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra
Hringadróttinssaga eftir J. R. R. Tolkien (1954-1955) í þýðingu Þorsteins Thorarensen. - Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren (1973) í þýðingu Helgu Kress og Fimm bókaflokkurinn (1942-1963) eftir Enid Blyton í þýðingu Guðrúnar Kristínar Magnúsdóttur. - Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra
Palli var einn í heiminum eftir Jens Sigsgaard (1942) í þýðingu Þórarins Eldjárns. - Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra
Valsauga og Minnetonka eftir Ulf Uller (1947) í þýðingu Sigurðar Gunnarssonar. - Alma Möller, heilbrigðisráðherra
Salomón svarti eftir Hjört Gíslason (1960). - Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra
Tinna-bækurnar eftir Hergé (1930-1976). Þýðendur: Loftur Guðmundsson og Þorsteinn Ó. Thorarensen