Forsætisráðherra ávarpaði allsherjarþing SÞ

Í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna fjallaði forsætisráðherra um þann árangur sem náðst hefur í jafnréttismálum á heimsvísu og þær áskoranir sem enn blasa við.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands flytur ávarp á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flytur ávarp sitt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum. Mynd/Sameinuðu þjóðirnar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði í gær allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York á sérstökum viðburði í tilefni þess að 30 ár eru nú frá sögulegri kvennaráðstefnu í Peking í Kína.

„Í ræðu sinni fagnaði forsætisráðherra þeim árangri sem náðst hefur í jafnréttismálum á heimsvísu síðustu áratugi – en benti sömuleiðis á að enn sé víða langt í land á ýmsum sviðum,“ segir í frétt forsætisráðuneytisins.

Í ræðu sinni sagði hún það vera sameiginlega ábyrgð allra að berjast fyrir jafnrétti og breyta gömlum viðmiðum, þvert á samfélög.

Þá er Kristrún sögð hafa beint sjónum sínum sérstaklega að jafnréttismálum á Íslandi og undirstrikað mikilvægi þess að eiga sterkar fyrirmyndir. Árangur Íslands í jafnréttismálum væri fyrst og fremst að þakka öllum konunum sem ruddu brautina.

„Þegar ég var að alast upp var forseti Íslands kona. Og ég gerði bara ráð fyrir því að forsetar væru almennt kvenkyns. Ég þekkti ekkert annað. Fyrirmyndir skipta máli,“ sagði hún í ræðu sinni.

Með orðum sínum vísaði forsætisráðherra til Vigdísar Finnbogadóttur, sem var fyrst kvenna í heiminum lýðræðislega kjörin forseti.

Kristrún benti jafnframt á hvernig hröð framganga kvenna í íslenskum stjórnmálum hafi tryggt mikilvæg réttindi, svo sem fæðingarorlof fyrir báða foreldra og almenna leikskólavist fyrir börn.

„Stærsti sigurinn er þó eflaust sá að kyn er varla lengur skilgreinandi þáttur í lífi og starfi á Íslandi. Það sem skiptir mestu máli er að fólk sinni sínum skyldum af hæfni og heilindum. Ég leiði samsteypustjórn þriggja flokka, sem öllum er stýrt af konum. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar er kona. Forseti Íslands og forseti Alþingis eru konur. Og þó að þetta sé sögulegt kippum við Íslendingar okkur varla upp við það,“ sagði forsætisráðherra í ræðu sinni.

Um leið áréttaði hún að Ísland væri ekki fullkomið.

„Kynbundið ofbeldi er mikið áhyggjuefni. Og á meðan umönnunarstörf eru ekki metin að verðleikum – sem grunnstoðir samfélagsins – munum við áfram búa við kynbundinn launamun.“

Hér má finna ávarp forsætisráðherra í heild sinni á ensku og hægt er að horfa á það hér á vef Sameinuðu þjóðanna. Ræða Kristrúnar hefst á 03:20:45 í myndbandinu.

Fram kemur í umfjöllun ráðuneytisins að allsherjarþing SÞ í New York sé nú haldið í 80. sinn.

Kristrún sækir þingið ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra. Í gær funduðu þær með Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinðuðu þjóðanna og í dag koma þær til með að sitja setningarathöfn allsherjarþingsins.