Lýsa yfir vilja til samstarfs vegna barna í viðkvæmri stöðu

Nýtt samstarfsverkefni í Kópavogi er sagt hluti af heildstæðri vinnu hjá lögreglunni við mótun á varanlegum stuðningi við börn í viðkvæmri stöðu til að draga úr líkum á ofbeldisbrotum þeirra.

Viktoría Guðmundsdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Halla Bergþóra Björnsdóttir, Ásdís Kristjánsdóttir og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir
Viktoría Guðmundsdóttir frá Sýslumanni á höfuðborgarsvæðinu, Guðríður Hrund Helgadóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, forstjóri hjúkrunar frá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu sem undirritað hafa viljayfirlýsingu um samstarf vegna barna í viðkvæmri stöðu. Mynd/Kópavogsbær

Kópavogsbær, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæslan og Menntaskólinn í Kópavogi hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf vegna barna í viðkvæmri stöðu í sveitarfélaginu.

Undirritunin átti sér stað í dag, 18. september, í lok vinnustofu sem Kópavogsbær stóð fyrir í samstarfi við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu með það að leiðarljósi að stuðla að þverfaglegu samstarfi og efla stuðning við börn í viðkvæmri stöðu.

„Markmið samstarfsins er að bregðast við auknu og alvarlegra ofbeldi meðal barna með því að byggja upp samþætt og faglegt samstarf sem dregur úr líkum á ofbeldisbrotum og stuðlar að farsæld barna,“ segir í tilkynningu Kópavogsbæjar.

Fram kemur að börn í viðkvæmri stöðu séu einstaklingar yngri en 18 ára sem geti verið þolendur eða gerendur í ofbeldismálum og falli undir tilkynningarskyldu samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga.

Til dæmis sé þar um að ræða börn sem búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi, eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.

„Samstarfið er mikilvægt skref til að tryggja að öll börn sem búa við erfiðar aðstæður fái snemmtækan og markvissan stuðning,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs. „Með því að samhæfa krafta okkar getum við dregið úr líkum á ofbeldisbrotum og stuðlað enn betur að farsæld allra barna í Kópavogi.“

Verkefnið er sagt hluti af heildstæðri vinnu hjá lögreglunni við mótun á varanlegum stuðningi við börn í viðkvæmri stöðu til að draga úr líkum á ofbeldisbrotum þeirra. Verkefnið er styrkt af bæði félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra.

„Stefnt er að því að verklagið í Kópavogi muni nýtast við mótun verklagsreglna ríkislögreglustjóra fyrir lögregluna vegna barna í viðkvæmri stöðu, þar með talið hlutverk lögreglu vegna laga um samþættingu þjónustu til farsældar barna, rannsókn ofbeldisbrota meðal barna og ungmenna og verklag um tilkynningar á milli lögreglu, barnaverndar og skóla þegar kemur að ofbeldi gegn börnum.“