Í fjárlagafrumvarpinu, sem liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir tímabundinni aukafjárveitingu til Vegagerðarinnar uppá þrjá milljarða króna í tengslum við mögulega byggingu Hvammsvirkjunar. Verði af Hvammsvirkjun liggur fyrir að Þjórsárdalsvegur fer undir miðlunarlón virkjunarinnar.
Hingað til hefur venjan verið sú að framkvæmdaraðili, í þessu tilviki Landsvirkjun, standi straum af kostnaði sem hlýst af framkvæmdum á hans vegum. Nú virðist annar háttur hafður á og óskað eftir heimild til að veita Vegagerðinni þrjá milljarða króna til að færa Þjórsárdalsveg. Hins vegar greiðir Landsvirkjun fyrir alla tengivegi og aðrar samgöngubætur sem tengjast framkvæmdinni beint, eins og lög gera ráð fyrir.
Í fjárlagafrumvarpinu segir:
Þá er gerð tillaga um 3 ma.kr. tímabundna heimild til vegagerðar í tengslum við mögulega byggingu Hvammsvirkjunar í Þjórsá. Breytingar á Þjórsárdalsvegi eru forsenda fyrir starfsemi Hvammsvirkjunar, þar sem núverandi vegur mun hverfa í lón virkjunarinnar að óbreyttu.
Samkvæmt vegalögum og lögum um umhverfismat ber framkvæmdaraðili ábyrgð á að bæta upp rask sem hann veldur á samgöngumannvirkjum. Í framkvæmd þýðir þetta að Landsvirkjun greiðir fyrir lagningu nýrra vega og brúa sem þurfa að koma í stað þeirra sem fara t.d. undir vatn. Þegar um er að ræða vegi á ábyrgð Vegagerðarinnar tekur hún við rekstri og viðhaldi nýju veganna eftir að framkvæmdum lýkur.
Þessi einstaka heimild til Vegagerðarinnar er sögð stærsta frávikið frá fjármálaáætlun til fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar.