Orkunotkun heimila hefur verið tiltölulega stöðug og farið hægt vaxandi undanfarin sex ár, að því er fram kemur í nýrri samantekt Hagstofu Íslands.
Að meðaltali hefur notkunin verið á við orkuinnihald 655 þúsund tonna af olíu á ári (ktoe). Stærstur hluti þessarar orku er sagður hafa skilað sér til heimilanna í formi hitaveitu, eða 60 prósent, þá jarðefnaeldsneytis, 23 prósent og loks í formi rafmagns, 13 prósent.
„Miðað við að hitaveita, rafmagn og lífolíur teljist endurnýjanlegir orkugjafar hér á landi hefur hlutfall þessarar orku verið á bilinu 70-77% af orkunotkun á árunum 2014 til 2023,“ segir Hagstofan.
Þá kemur fram í samantekt Hagstofunnar í í tölunum litla beina merkjanlega breytingu að finna, þrátt fyrir fjölgun rafbíla. Almennt hafi olíunotkun þó dregist saman frá árinu 2019.
Frekara talnaefni um orkunotkun er að finna á vef Hagstofunnar.