Heildarafli í ágúst var rúmlega 106 þúsund tonn

Þó að afli hafi aukist milli ára í ágústmánuði er tveggja prósenta samdráttur afla á milli ára sé litið til tímabilsins frá september 2024 til ágústloka 2025.

Karfi
Karfi telst til djúpsjávarfiska. Mynd/ÓKÁ

Landaður afli í ágúst síðastliðnum nam rúmum 106 þúsund tonnum samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Aflinn er 32 prósentum meiri en í ágúst í fyrra.

Fram kemur að um sjö prósenta samdráttur hafi orðið á botnfiskafla sem hafi verið 30 þúsund tonn, á meðan uppsjávarafli hafi verið tæplega 74 þúsund tonn og aukist um 62 prósent.

Til botnfiskafla teljast meðal annars tegundir á borð við þorsk, ýsu, ufsa og karfa, en uppsjávarafla síld, loðna, kolmunni og makríll.

Hagstofan bendir jafnframt á að á ársgrundvelli tímabilsins september 2024 til ágúst 2025 hafi verið landað samtals 1.006 þúsund tonnum sem sé tveimur prósentum minni afli en á sama tímabili ári fyrr.

Samantekt og frekara talnaefni er að finna á vef Hagstofunnar.