Kosningaþátttaka eykst með hækkandi menntunarstigi. 15,7 prósentustigum munaði á kosningaþátttöku fólks með háskólamenntun og þeirra sem bara eru með grunnskólamenntun í síðustu Alþingiskosningum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofu Íslands.
Í greiningunni fjallar Hagstofan um Alþingiskosningarnar 30. nóvember í fyrra og segir niðurstöðuna þá sambærilega við kosningarnar 2021.
Hagstofan segir að í síðustu Alþingiskosningum hafi alls verið 268.490 á kjörskrá eða 68,9 prósent landsmanna. Af þeim hafi 215.395 greitt atkvæði eða 80,2 prósent kjósenda.
„Kosningaþátttaka kvenna var 81,2%, karla 79,2% og kynsegin/annarra 69,9%.“
Þá segir að nú sé í fyrsta sinn síðan Hagstofan hóf miðlun kosningaskýrslna boðið upp á greiningu á kosningaþátttöku eftir menntun fyrir bæði árin 2021 og 2024.
„Niðurstöðurnar sýna skýran mun á kosningaþátttöku eftir menntunarstigum.“
Mest var kosningaþátttakan á meðal háskólamenntaðra eða 86,8 prósent árið 2024, að sögn Hagstofunnar.
Næstmest þátttaka var svo á meðal þeirra sem höfðu framhaldsskólamenntun, 81,3 prósent, en minnst meðal grunnskólamenntaðra, 71,1% prósent.
„Sama þróun var sjáanleg fyrir árið 2021,“ segir Hagstofan.
Það ár var hlutfall háskólamenntaðra 86,8 prósent, hlutfall grunnskólamenntaðra 71,6 prósent og hlutfall framhaldsskólamenntaðra 80,9 prósent.
Hægt er að skoða myndræna framsetningu gagnanna á vef Hagstofunnar.