Ísland tekur þátt í fjölþjóðlegum aðgerðum til verndar Grænlandsstofn blesgæsar sem hnignað hefur ört síðustu ár.
„Grænlandsstofn blesgæsa, sem dvelur hér á landi á vorin og haustin, hefur dregist saman úr um 36.000 fuglum um aldamótin í innan við 15.000 í dag,“ segir í umfjöllun á vef Náttúruverndarstofnunar.
Þar segir jafnframt að veðurfarsbreytingar og versnandi varpskilyrði á austurströnd Grænlands hafi haft mest áhrif á stofninn.
„Stofninn hefur verið friðaður á Íslandi frá árinu 2006, en rannsóknir sýna að 11% fuglanna bera samt í sér högl. Það er því mikilvægt að efla fræðslu og samstarf við veiðimenn til að lágmarka tilviljanakennd afföll.“
Fram kemur að vegna alvarlegrar stöðu stofnsins hafi verið boðað til fundar í Belgíu í júní síðastliðnum með þátttöku Íslands, Bretlands, Írlands og Danmerkur. Þar hafi verið ræddar samræmdar aðgerðir.
„Náttúruverndarstofnun, Skotveiðifélag Íslands og fleiri hagsmunaaðilar undirbúa nú fræðslu- og kynningarátak, ásamt því að kanna leiðir til að auðvelda veiðimönnum að greina á milli grágæsa og blesgæsa.“
Náttúruverndarstofnun segir að sérstök áhersla verði lögð á að sýna varúð á helstu viðkomustöðum fuglanna á Suður- og Vesturlandi.