Bæta Edinborg við leiðakerfið sem heilsársáfangastað

Edinborg í Skotlandi.
Edinborg í Skotlandi. Mynd/Icelandair

Icelandair hóf í dag flug til Edinborgar í Skotlandi. Fram kemur í tilkynningu félagsins að boðið verði upp á þrjú til fjögur flug í viku og að flugtíminn sé um tvær klukkustundir og tuttugu mínútur.

Icelandair keppir við breska lággjaldaflugfélagið easyJet á flugleiðinni sem um árabil hefur boðið upp á beint flug milli Keflavíkur og Edinborgar.

Í tilkynningu Icelandair kemur fram að Edinborg sé annar áfangastaður flugfélagsins í Skotlandi en félagið fljúgi einnig til Glasgow.

„Í ár eru 80 ár frá því að Icelandair hóf fyrst flug til Skotlands, sem var jafnframt fyrsta millilandaflug félagsins,“ segir þar.

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að nú þegar félagið fagni því að 80 ár séu frá því það hóf fyrst flug til Skotlands sé mjög ánægjulet að bæta Edinborg við leiðakerfið.

„Borgin er frábær helgaráfangastaður fyrir Íslendinga og flugtími er stuttur en einnig höfum við fundið fyrir miklum áhuga á tengiflugi okkar á milli Edinborgar og Norður-Ameríku. Vinsældir borgarinnar leyna sér ekki og sýnir það sig í því að upphaflega stóð til að fljúga til borgarinnar yfir vetrartímann en nú höfum við ákveðið að fljúga allt árið,“ segir hann.