Nýr tíu þúsund fermetra verslunarkjarni, sem hýsir verslanir Krónunnar, BYKO og Gæludýr.is, opnar formlega dyr sínar við Fitjabraut 5 í Reykjanesbæ næstkomandi laugardag.
Fram kemur í tilkynningu að fyrsta skóflustungan að húsnæðinu hafi átt sér stað fyrir um tveimur árum og að fasteignafélagið Smáragarður ehf. hafi séð um byggingu þess. Byggingin er sög’ vottuð samkvæmt BREEAM stöðlum sem samræmist framtíðarsýn fyrirtækjanna um sjálfbærni.
BYKO í tvöfalt stærra rými og stærsta verslun Gæludýr.is
BYKO opnar 5.300 fermetra verslun í húsnæðinu og fer því í tvöfalt stærra verslunarrými en í fyrri verslun sinni á Víkurbraut. Fram kemur að vera BYKO á Suðurnesjum nái allt til ársins 1996 og að nýtt og stærra húsnæði sé liður í að þjónusta heimili og atvinnulíf á Suðurnesjum enn betur.
„Krónan opnaði eina af stærstu verslunum sínum við Fitjabraut nú á dögunum þar sem Suðurnesjamenn hafa nú þegar tekið afar vel á móti versluninni og nýrri staðsetningu. Nýja verslunin er þúsund fermetrum stærri en eldri verslun að Fitjum og býður hún upp á aukið vöruúrval, auk þess að gera Krónunni kleift að sinna aukinni eftirspurn eftir heimsendingarþjónustu á Suðurnesjum. Að auki er Tokyo Sushi með útibú innan verslunarinnar,“ segir í tilkynningunni.
Sömuleiðis kemur fram að Gæludýr.is opni sína fyrstu verslun í Reykjanesbæ sem jafnframt sé sjötta og stærsta verslun keðjunnar. Í henni geti gæludýraeigendur á Suðurnesjum gengið að fjölbreyttu úrvali af gæludýravörum fyrir hunda, ketti, fugla, fiska og nagdýr.
„Viðskiptavinum er velkomið að taka gæludýr sín með í verslunarferð þar sem gott rými er fyrir ferfætlinga innan verslunar.“

Fólksfjölgun og uppbygging kallar á sterkar þjónustustoðir
Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, fagnar því í tilkynningunni að nú sé uppbyggingu við Fitjabraut 5 lokið með formlegri opnun verslananna sem komi til með að bæta til muna þjónustu innan bæjarfélagsins. Mikil uppbygging hafi átt sér stað á svæðinu til að taka enn betur á móti nýjum íbúum í Reykjanesbæ og sé mikilvægt að hægt sé að stóla á sterkar stoðir þegar kemur að þjónustu.
„Við í Reykjanesbæ bjóðum Krónuna, BYKO og Gæludýr.is velkomin við Fitjabraut í sínar stærstu verslanir og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir Guðný Birna.
Formleg opnun verslananna fer fram laugardaginn 13. september og verða þá allar verslanirnar verða með opnunartilboð, auk þess sem mikið verður um að vera á milli klukkan 12 til 15. Má þar nefna hundagöngu, Sirkus Íslands, Emmsjé Gauta og atriði frá Danskompaníinu.