Losun Landsvirkjunar vegna orkuvinnslu á orkueiningu fyrri hluta ársins nam 2,8 grömmum koldíoxíðígilda á hverja unna kílóvattstund á fyrri helmingi ársins og dróst saman um sjö prósent frá árinu áður. Heildarlosun, bæði vegna orkuvinnslu og framkvæmda, jókst hins vegar um tæpan fimmtung á milli ára.
Þetta er meðal þess sem lesa má í nýútkomnu hálfsársuppgjöri loftslagsbókhalds fyrirtækisins fyrir yfirstandandi ár.
„Samdráttinn má rekja til þess að losun frá jarðvarmastöðvum minnkaði um 14% milli ára vegna minni vinnslu í Kröflustöð, en losun frá jarðvarmavinnslu er stærsti einstaki liðurinn í losun okkar. Losun frá lónum jókst um 42% frá fyrra ári, en hún er háð veðurfari og ræðst af fjölda þeirra daga sem lón eru ísilögð,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar.
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi Landsvirkjunar, bæði vegna orkuvinnslu og framkvæmda, nam 5,1 g CO2-íg/kWst og jókst um 19 prósent á milli ára.
„Mæld í tonnum jókst hún um 16% og nam 34.400 tonnum CO2-ígilda. Þessa aukningu má að mestu leyti rekja til aukinna framkvæmdaumsvifa, en við vinnum nú að uppbyggingu fyrsta vindorkuvers landsins, Vaðölduvers, og undirbúningsframkvæmdum fyrir Hvammsvirkjun.“
Fram kemur að kolefnisspor á orkueiningu, eða losun að frádreginni kolefnisbindingu, hafi verið 2,3 gCO₂-íg/kWst. Mælt í tonnum hafi kolefnissporið verið 15.853 tonn CO2-ígilda.
Forðuð losun vegna raforkuvinnslu Landsvirkjunar á fyrri hluta ársins er sögð hafa numið nam um 1,2 milljónum tonna CO2-ígilda.
„Orkuvinnsla okkar samræmist áfram markmiðum heims um 1,5°C hlýnun og heildarlosun er áfram undir viðmiðum um kolefnishlutleysi orkufyrirtækja, 9,1 g CO2-íg/kWst, sem fjallað er um í aðgerðaáætlun okkar í loftslags- og umhverfismálum.“
Landsvirkjun bendir á að árlega komi út hjá fyrirtækinu hálfsársuppgjör loftslagsbókhalds þar sem birtar séu tölulegar upplýsingar um losun vegna starfsemi fyrirtækisins á fyrri helmingi ársins. Uppgjörið sé unnið út frá aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol (GHGP), alþjóðlegs fyrirtækjastaðals fyrir upplýsingagjöf um losun gróðurhúsalofttegunda.