BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð X3 Plug-in Hybrid

BMW X3
Nýr BMW X3 sportjeppi. Mynd/BL

Þýski bílaframleiðandinn BMW hefur veitt BL, umboðsaðila BMW á Íslandi, stuðning til að lækka verð á nýjustu kynslóð BMW X3 sportjeppans. 

Fram kemur í tilkynningu að lækkunin nemi um 700-900 þúsund krónum eftir gerðum og að hún hafi þegar tekið gildi.

„Þannig lækkar annars vegar BMW X3 30e úr 12.690.000 króna í 11.990.000 kr. eða um 700 þúsund, og hins vegar BMW M sport, sem lækkar um 900 þúsund krónur; frá 13.890.000 króna í 12.990.000 króna.“

Ný útlitshönnun

Fram kemur að meðal helstu annarra breytinga í nýjustu kynslóð sportjeppans sé til dæmis að bensínvélin hafi verið uppfærð og ásamt rafmótornum sé nýr X3 tæplega 300 hestöfl og 6,2 sek. úr kyrrstöðu í 100 kílómetra hraða á klukkustund.

„Þá er ytra útlit bílsins talsvert breytt, þar sem endurhannað nýrnagrillið með innbyggðum útlínuljósum og tvöföldum ljósmerkingum á framljósum, fanga athyglina. Að auki hafa hliðar breyst með nýrri ásýnd, m.a. breyttum húnum auk þess sem rafdrifni afturhlerinn og afturljós hafa fengið nýja hönnun svo nokkuð sé nefnt.“

Endurhannað innra rými

BMW X3
Mælaborð og innanrými í nýjum BMW X3. Mynd/BL

Þá er farþegarýmið í nýjum X3 sagt hafa tekið stakkaskiptum.

„Sætin eru ný og framleidd úr vönduðum endurnýtanlegum efnum, stjórn gírskiptingar og annarra aðgerða á láréttum miðjustokkinum hafa fengið nýja hönnun og kominn sveigður háskerpuskjár fyrir mælaborð, afþreyingu og stjórn margvíslegra annarra aðgerða er varða bílinn.“

Sömuleiðis hafi fótarými og geymslurými verið aukið í bílnum ásamt valmöguleikum fyrir mismunandi lýsingu í farþegarýminu.

Snjöll tækni

Eins er snjalltæknin sömuleiðis sögð hafa verið aukin verulega í nýjum X3. Þannig skilji stjórntölvan nú mun fleiri raddskipanir en áður, afþreyingarmöguleikar hafi verið auknir með meira innbyggðu gagnamagni sem veiti aðgang að úrvali smáforrita fyrir streymisveitur, meðal annars með bíómyndum.

„Með BMW símaappinu, sem er beintengt við bílinn, má einnig athuga ástand bílsins, svo sem vélarolíunnar og fleiri þætti, panta þjónustuskoðun, láta bílinn flauta á þig, t.d. ef þú finnur hann ekki á bílaplaninu við flugstöðina í Keflavík, svo nokkuð sé nefnt.“

Sá mest seldi frá upphafi

BL segir að frá því BMW X3 kom fyrst á markað síðla árs 2003 hafi hann verið framleiddur í vel yfir þremur milljónum eintaka og frá upphafi verið vinsælasti lúxussportjeppinn frá BMW.

„Nýjasta kynslóðin, sem kom á markað snemma á þessu ári, hefur aldrei verið glæsilegri eða tæknivæddari en einmitt nú. Er óhætt að segja að sjaldan hafi orðatiltækið að „lengi geti gott batnað“ átt betur við vegna glæsileika, þar sem sameinast sportlegir aksturseiginleikar, háþróuð tækni og einstök hönnun,“ segir í tilkynningu umboðsins.

Haft er eftir Ómari Magnússyni, sölumanni hjá BMW á Íslandi, að mjög ánægjulegt sé að geta nú boðið þennan vinsælasta sportjeppa BMW frá upphafi á enn hagstæðara verði.

„Lækkunin er tilkomin vegna mjög trausts og rógróins samstarfs okkar og BMW, en ekki síður vegna mikilla vinsælda bílsins á heimsvísu,“ segir hann.