Um mánaðamótin tekur gildi nýtt skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur staðfest ákvörðun um nýja skipulagið að því er fram kemur í frétt ráðuneytisins.

Þar segir að skrifstofum ráðuneytisins komi til með að fækka um eina með sameiningu verkefna skrifstofu yfirstjórnar og skrifstofu reksturs og innri þjónustu.
„Þá er kjara- og mannauðssýslu ríkisins breytt úr ráðuneytisstofnun í skrifstofu í ráðuneytinu.“
Breytingarnar eru sagðar fela í sér aukið hagræði í rekstri ráðuneytisins, meðal annars með því að eitt embætti skrifstofustjóra er lagt niður.
„Þá munu breytingarnar að stuðla að aukinni samhæfingu, þverfaglegri samvinnu og verkefnamiðari nálgun.“
Sett séu á stofn fagteymi um mál á borð við framkvæmd fjárlaga, endurmat útgjalda og fjármálastöðugleika. Með því er sagt tryggt að sérfræðiþekking nýtist þvert á skrifstofur ráðuneytisins.
„Ráðuneytið fer með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins.“

Frekari upplýsingar um skipulag og verkefni fjármála- og efnahagsráðuneytisins er að finna á vef ráðuneytisins.