Samtök gagnavera og Samtök iðnaðarins gera alvarlegar athugasemdir við ummæli forstöðumanns netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, í fjölmiðlum í gær um íslenskan gagnaversiðnað og að íslensk gagnaver séu meira aðlaðandi en mörg önnur fyrir aðila til að stunda peningaþvættisglæpi.
Í yfirlýsingu samtakanna segir að íslenskur gagnaversiðnaður hafi átt ríkan þátt í að byggja upp öfluga stafræna innviði á Íslandi. Allir félagsmenn Samtaka gagnavera, sem reka alhliða gagnaver, hafi sótt sér alþjóðlegar öryggisvottanir. Þá er sterk öryggismenning sögð forsenda þess að hægt sé að reka hér öfluga gagnaversstarfsemi.
„Gagnaver á Íslandi starfa í nánu samstarfi við innlendar og erlendar stofnanir til að koma í veg fyrir misnotkun og taka málefni sem varða netöryggi mjög alvarlega. Samstarf við íslensk lögregluyfirvöld er mjög traust. Tilvik eða einstök atvik þar sem innviðir kunna að vera misnotaðir í glæpsamlegum tilgangi heyra til algjörra undantekninga en í slíkum tilfellum taka við skýrir verkferlar og viðbrögð í samstarfi við yfirvöld,“ segir í yfirlýsingunni.
Samtökin segjast hafa fengið staðfest hjá lögregluyfirvöldum að tilfellið sem varð tilefni fjölmiðlaumfjöllunar í gær hafi ekki tengst námugreftri rafmynta í búnaði í íslensku gagnaveri, heldur hafi verið um að ræða alþjóðlega glæpastarfsemi sem meðal annars hafi verið hýst á netþjóni leigðum frá íslensku hýsingarfyrirtæki, sem verið hafi grandalaust um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Lögregla hafi staðfest að ekki sé um að ræða aðrar tengingar við Ísland og að aðkoma lögreglu hér á landi hafi takmarkast við að aðstoða erlenda rannsakendur við að fá aðgang að netþjóni sem hýstur hafi verið hér á landi.
„Svo virðist sem forstöðumaður CERT-IS hafi stigið inn í umræðuna byggt á misskilningi um málsatvik, eðli þeirrar starfsemi sem rannsóknin beindist að og tengsl hennar við íslensk fyrirtæki og íslenska innviði.“
Samtökin segjast telja ummæli forstöðumanns CERT-IS um málið í heild sinni óábyrg og byggð á röngum forsendum, meðal annars um raforkuverð á Íslandi og meint auðvelt aðgengi að íslenskum gagnaverum, Þær séu í engu samræmi við raunveruleikann hér á landi.
„Það er mikill ábyrgðarhluti að fram komi fullyrðingar frá íslensku stjórnvaldi, sem gegnir hlutverki viðbragðsteymis við ógnum, atvikum og áhættu á sviði net- og upplýsingaöryggis, að Ísland sé útsettara og því fýsilegri kostur en önnur lönd fyrir glæpastarfsemi, sérstaklega í ljósi þess að því fer víðs fjarri.“
Haft er eftir Birni Brynjúlfssyni, formanni Samtaka gagnavera, að Íslenskur gagnaversiðnaður hafi ríka hagsmuni af því að tryggja að Ísland sé ábyrgur hýsingarstaður.

„Íslensk gagnaver innan vébanda Samtaka gagnavera búa við ríka öryggismenningu og starfa á alþjóðlegum markaði,“ segir hann.
Íslenskur gagnaversiðnaður byggi á traustum alþjóðlegum og viðurkenndum öryggis- og gæðastöðlum þar sem daglega sé unnið að því að tryggja örugga og ábyrga hýsingu gagna. Þá þurfi viðskiptavinir gagnavera að fara í gegnum sérstakt áreiðanleikamat og fylgja skýrum notendareglum sem koma eigi í veg fyrir alla ólöglega starfsemi.
„Óskiljanlegt er að gefið hafi verið til kynna að gagnaversiðnaðar í landinu sé með einhverjum hætti fýsilegur kostur fyrir glæpastarfsemi. Við höfnum slíkum fullyrðingum algjörlega. Þar að auki standast fullyrðingar um ódýra orku til handa gagnaverum á Íslandi enga skoðun.“