SKE hvetur dagvöruverslanir til að gæta að sér

Staðfest hefur verið ákvörðun norskra samkeppnisyfirvalda um að leggja 60 milljarða króna sekt á dagvöruverslanakeðjur þar í landi.

Í matvöruverslun
Rýnt í verð í erlendri matvöruverslun. Mynd/Vlad Frolov á Unsplash

Samkeppniseftirlitið (SKE) hvetur íslenskar dagvöruverslanir til að gæta að sér við söfnun verðupplýsinga hver hjá annarri. Er þetta gert í ljósi niðurstöðu norskra samkeppnisyfirvalda og hárra sekta sem lagðar hafa verið á dagvöruverslanakeðjur þar í landi.

„Þann 21. ágúst síðastliðinn staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála í Noregi ákvörðun norska samkeppniseftirlitsins um að leggja stjórnvaldssektir á þrjár dagvörukeðjur vegna ólögmæts samráðs þeirra á milli,“ segir í frétt SKE.

Bent er á að ákvörðun norska samkeppniseftirlitsins hafi verið staðfest í heild sinni, þar á meðal stjórnvaldssektir að fjárhæð 4,9 milljarðar norskra króna, sem svari til um 60 milljarða íslenskra króna. 

Málið beindist að dagvörukeðjunum Coop, Norgesgruppen og Rema, sem eftirlitið segir hafa samanlagt um 95 prósenta hlutdeild á norska dagvörumarkaðnum.

Samráðið fólst í söfnun verðupplýsinga

„Brotin fólust í umfangsmikilli gagnkvæmri söfnun dagvörukeðjanna á upplýsingum um verðlagningu dagvara hjá keppinautum, sem nýtt var innanhúss við ákvarðanir um verð.“

SKE segir tildrög málsins hafa verið að ACNielsen í Noregi hafi hætt að miðla milli keðjanna upplýsingum um verðlagningu dagvara, eftir að norska eftirlitið hafði bent á að slík upplýsingamiðlun kynni að skaða samkeppni og brjóta gegn samkeppnislögum.

„Í framhaldinu gerðu dagvörukeðjurnar sem ákvörðunin beinist að með sér samkomulag um verðsamanburð sem fól m.a. í sér gagnkvæmar heimsóknir þeirra í verslanir hvorrar annarrar, í því skyni að safna verðupplýsingum. Fyrirtækin sammæltust einnig um nánari útfærslu á söfnun verðupplýsinga sem fól í sér rafræna skönnun á verðum í verslunum keðjanna. Þessi gagnkvæma upplýsingasöfnun var síðar útvíkkuð frekar af hálfu fyrirtækjanna.“

Áfrýjunarnefnd staðfesti brotin

Vísað er til úrskurðar norsku nefndarinnar um að upplýsingasöfnunin hafi veitt hverri dagvörukeðju fyrir sig vissu um að keppinautarnir myndu bregðast hratt við verðbreytingum. 

„Verðlækkanir myndu því tæpast skila árangri, vegna skjótra viðbragða keppinautanna. Verðhækkanir væru hins vegar líklegri til að skila árangri, þar sem keppinautarnir hefðu tilhneigingu til þess að bregðast við þeim með eigin hækkunum.“

Skilaboð til íslenskra dagvöruverslana

„Samkeppniseftirlitið hefur á liðnum árum varað við því að fyrirtæki hér á landi og hagsmunasamtök þeirra miðli upplýsingum milli keppinauta um verðlagningu og verðlagningaráform, sbr. t.d. leiðbeiningarsíðu Samkeppniseftirlitsins og nú síðast í tilkynningu á heimasíðu eftirlitsins, dags. 18. desember 2024. Þá var miðlun verðupplýsinga milli Byko og Húsasmiðjunnar talin fela í sér alvarleg brot, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 42/2019.“

Samkeppniseftirlitið ítrekar því mikilvægi þess að íslensk dagvörufyrirtæki stundi enga ólögmæta gagnkvæma söfnun á verðupplýsingum. Eftirlitið áréttar að slík áttsemi skaði samkeppni og sér til þess fallin að hækka verð á dagvörum.

„Hækkun dagvöruverðs hefur eðli máls samkvæmt margvísleg neikvæð áhrif á hagsmuni neytenda, fyrirtækja og efnahagslífið í heild sinni,“ segir SKE.

Þá bendir Samkeppniseftirlitið á að stjórnvöld í ýmsum löndum, þar á meðal í Noregi, hafi á undanförnum árum aukið fjárveitingar til eftirlits með samkeppni á dagvörumörkuðum í því skyni að sporna gegn verðhækkunum til framtíðar.