Samkvæmt mælingu Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 3,2 prósent í júlí 2025.
„Fjöldi atvinnulausra var um 7.800. Hlutfall starfandi var 80,3 prósent, sem samsvarar tæplega 233.000 einstaklingum og atvinnuþátttaka var 83 prósent, eða um 240.800 manns á vinnumarkaði,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Miðað við júlí 2024 segir Hagstofan að atvinnuleysi hafi aukist um 1,3 prósentutig á milli ára. Eins hafi hlutfall starfandi dregist saman um 3,5 prósentustig milli ára og atvinnuþátttaka dregist saman um 2,5 stig.
„Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir júlí 2025 var atvinnuleysi 4,0 prósent. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 78,2 prósent og atvinnuþátttaka 81,4 prósent.“
Þá segir að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hafi aukist um 1,3 prósentustig á milli júní og júlí.
„Hlutfall starfandi á milli þessara mánaða dróst saman um 1,3 prósentustig og atvinnuþátttaka lækkaði um 0,2 prósentustig.“