Húsnæðis og mannvirkjastofnun segir teikn á lofti um að hægari fólksfjölgun komi til með að draga úr íbúðaþörf í ár.
Í nýrri greiningu á vef stofnunarinnar er bent á að undanfarin ár hafi mikil fólksfjölgun verið drifin áfram af aðflutningi erlendra ríkisborgara.
„Hægst hefur á þessari þróun en aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta voru aðeins 1.700 á fyrri hluta þessa árs, samanborið við 2.380 á sama tíma í fyrra og 3.900 árið þar áður.“
Á öðrum ársfjórðungi hafi aðfluttir umfram brottflutta í heildina verið 1.350, sem séu talsvert fleiri en á fyrsta ársfjórðungi þegar þeir voru 190, en þó ekki margir miðað við annan ársfjórðung í sögulegu samhengi. Síðast hafi aðfluttir umfram brottflutta verið færri á öðrum ársfjórðungi árið 2021.

„Út frá nýjustu mælingu Hagstofu og árstíðarmynstri fyrri ára má gera ráð fyrir því að íbúum fjölgi um u.þ.b. 5.500 manns í ár, eða um 1,4% af núverandi íbúafjölda. Lágspá í mannfjöldaspá Hagstofu gerir hins vegar ráð fyrir um 1,8% fjölgun. Ef fram heldur sem horfir og fjölgun íbúa verður hægari en gert var ráð fyrir mun það, að öðru óbreyttu, koma til með að draga úr íbúðaþörf í ár.“
HMS segir íbúðaskuld hafa myndast á síðustu árum, þar sem fjölgun íbúða hafi ekki haldið í við fjölgun fullorðinna einstaklinga.
Vitnað er til línu og stöplaritsins, sem sjá má hér fyrir neðan og er tekið úr nýjustu mánaðarskýrslu HMS, þar sem borin er saman íbúðauppbygging og fólksfjölgun frá árinu 2006 ásamt spá fyrir árin 2025 til 2027. Árin 2006 og fram að efnahagshruni 2008 eru sögð hafa einkennst af mikilli íbúðauppbyggingu og talsverðri mannfjölgun.
„Á árunum 2009 til 2011 fækkaði svo íbúum landsins hratt, auk þess sem íbúðauppbygging dróst saman. Íbúum og íbúðum fjölgaði svo með stöðugum hætti næstu árin.“

HMS segir að frá árinu 2015 hafi myndast íbúðaskuld, en líkt og myndin hér að ofan sýni, þá hafi íbúðum ekki fjölgað í takt við fjölgun fullorðinna íbúa árin 2017-2019 og 2022-2024.
„Á tímabilinu 2015-2024 fjölgaði fullorðnum einstaklingum um 22 prósent, á meðan fullbúnum íbúðum fjölgaði um 19 prósent.“
Mögulegt er sagt að íbúðaskuldin gæti minnkað í ár, en HMS spáði því í mars að margar íbúðir gætu orðið fullbúnar í ár á meðan rauntölur sýni að hægt hafi á fólksfjölgun.
„Þó er mikil óvissa um bæði fólksfjölgun og íbúðauppbyggingu næstu ára. Hagstofa gerir enn ráð fyrir töluverðri fólksfjölgun á árunum 2025-2027 og nýjustu tölur af byggingarmarkaðnum gefa til kynna að farið sé að hægja á uppbyggingu íbúða.“
Bent er á að á öðrum fjórðungi þessa árs hafi komið 703 nýjar íbúðir á markað, samanborið við 830 á sama tíma í fyrra og 848 á öðrum ársfjórðungi 2023. Á fyrri hluta þessa árs hafi því komið 1.483 nýjar íbúðir á markað samanborið við 1.599 og 1.624 á fyrri hluta áranna 2024 og 2023.

„Spá um hversu margar íbúðir munu koma fullbúnar inn á markaðinn í ár, 2026 og 2027 er byggð á talningu HMS á fjölda íbúða í byggingu frá því í mars á þessu ári. Líkt og fram kemur í frétt HMS hófst septembertalning í þessari viku og til stendur að kynna niðurstöður nýrrar íbúðatalningar á opnum kynningarfundi 23. september næstkomandi.“
Haldist umfang íbúðauppbyggingar óbreytt á seinni helmingi þessa árs og mannfjöldaspá Hagstofu gangi eftir segir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að búast megi við því að íbúðaskuldin aukist á næstu tveimur árum.
„HMS mun fylgjast náið með stöðu íbúðauppbyggingar og fólksfjölgunar í haust til að meta óuppfyllta íbúðaþörf á markaði.“