Neysla bjórs dróst saman um þrjú prósent á milli ára

Velta má fyrir sér hvort vætutíð sumarsins 2024 hafi haft áhrif á sölutölur áfengis það árið.

Bjór - beer
Mynd: Gerrie van der Walt á Unsplash

Neysla áfengis dróst lítillega saman á milli áranna 2023 og 2024 samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um áfengissölu hér á landi.

Fram kemur að seldir hafi verið um 2.407 þúsund alkóhóllítrar (rúmar 2,4 milljónir lítra) árið 2024 samanborið við 2.388 þúsund áfengislítra (tæpar 2,4 milljónir lítra) árið 2023.

„Mælt í hreinum vínanda á íbúa 15 ára og eldri var meðalneyslan um 7,6 lítrar árið 2024 sem var um 1,6 prósent minna en árið 2023 þegar neyslan nam um 7,7 lítrum. Mestur samdráttur á milli ára var í neyslu bjórs eða 3 prósent,“ segir í samantekt Hagstofunnar.

Ekki er að finna vangaveltur um orsakir samdráttar neyslunnar milli áranna 2023 og 2024 í samantekt Hagstofunnar, en þeir sem minnugir eru um veðurfar gætu velt fyrir sér hvort vætutíð og almennt sólarleysi sumarið 2024 kynni að hafa haft áhrif.