Atvinnuleysi gæti farið úr 3,9 í 4,3 prósent samkvæmt spá VMST

Mánaðarlegt atvinnuleysi á fyrri helmingi árs 2025 fylgdi að mestu leyti sömu árstíðarþróun og árið 2024 en var að sögn Vinnumálastofnunar hærra allt tímabilið. Á fyrri hluta 2025 var nærri fjórðungur allra starfandi karla af erlendum uppruna.

Ný skýrsla Vinnumálastofnunar um vinnumarkaðinn á fyrri hluta ársins er komin út. Mynd/VMST-samsett

Skammtímaspá Vinnumálastofnunar gerir ráð fyrir að atvinnuleysi á síðari hluta árs 2025 fari vaxandi og að atvinnuleysi fari hæst í 4,2 til 4,3 prósent við lok árs.

Í nýútkominni skýrslu Vinnumálastofnunar um vinnumarkaðinn fyrri hluta árs 2025 kemur fram að atvinnuleysi á fyrstu sjö mánuðum þessa árs hafi verið 3,9 prósent, samanborið við 3,5 prósent á sama tímabili árið 2024.

„Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu jókst meira en á landsbyggðinni og jafnframt var atvinnuleysi á Suðurnesjum hærra en á öðrum landsvæðum,“ segir í samantekt stofnunarinnar um stöðu og horfur á vinnumarkaði.

Fram kemur að búist sé við stöðugum hagvexti í ár eftir samdrátt á síðasta ári og að verðbólga lækki áfram hægt.

„Virðist vinnumarkaður hafa farið kólnandi það sem af er ári sem bæði má sjá á hækkandi atvinnuleysi og minni fjölgun starfandi á árinu.“

Vinnumálastofnun bendir á að undanfarin ár hafi atvinnuleysi fólks af erlendum uppruna verið hærra en meðal Íslendinga og árstíðarsveifla atvinnuleysis mun meiri.

Þá sé tímabil atvinnuleysis hjá erlendum ríkisborgurum einnig að meðaltali lengra en hjá Íslendingum. Þegar litið sé til tölulegra gagna síðastliðin þrjú ár hafi um 56 prósent íslenskra ríkisborgara verið afskráðir af atvinnuleysisskrá á innan við fjórum mánuðum meðan hlutfallið hafi verið 40 prósent fyrir erlenda ríkisborgara.

„Atvinnuleysi ungs fólk á vinnumarkaði jókst minna en hjá öðrum aldurshópum á fyrri helmingi ársins 2025 en langtímaatvinnuleysi jókst lítillega.“

Á fyrstu sex mánuðum þessa árs segir Vinnumálastofnun að störfum hafi fjölgað mest innan opinberrar stjórnsýslu, í fræðastarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónustu og byggingariðnaði, á meðan störfum innan framleiðslugeirans og gististarfsemi hafi fækkað milli ára.

„Atvinnuleysi jókst á sama tíma mest í byggingariðnaði og greinum tengdum ferðaþjónustu eins og veitinga- og gistiþjónustu.“

Fram kemur að hlutfallslega hafi dregið úr atvinnuleysi í atvinnugreinum tengdum verslun og þjónustu og innan opinberrar stjórnsýslu og skildum greinum.

Jafnframt kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar að samkvæmt skráargögnum Hagstofu Íslands hafi að meðaltali verið 220.900 starfandi á fyrstu sex mánuðum ársins 2025 og fjölgað um 0,6 prósent miðað við sama tímabil árið á undan, en starfandi teljast allir þeir sem voru með launatekjur á tímabilinu.

Konum með launatekjur hafi fjölgað um 0,8 prósent á móti 0,5 prósenta aukningu hjá körlum. Þá hafi hlutfall innflytjenda var 24,3 prósent af öllum starfandi fyrstu sex mánuði ársins og hækkað um 0,8 prósent miðað við sama tímabili árið á undan.

„Karlar voru þar fleiri en konur og á fyrstu sex mánuðum ársins 2025 var u.þ.b. fjórðungur starfandi karlmanna hér á landi af erlendum uppruna eða 24,8 prósent.“