Yfir ellefu hundruð tóku þátt í drulluhlaupi í Mosfellsbæ

Gleðin var við völd í Drulluhlaupi Krónunnar, UMFÍ og Aftureldingar sem fram fór í Mosfellsbæ um helgina.

Þátttakendur í Drulluhlaupi Krónunnar, UMFÍ og Aftureldingar.
Gleðin var við völd í Drulluhlaupi Krónunnar sem fram fór í Mosfellsbæ um helgina. Myndir: UMFÍ/JAB

Rúmlega 1.100 manns á öllum aldri tóku þátt í árvissu Drulluhlaupi Krónunar sem fram fór í Mosfellsbæ á laugardag. Að hlaupinu standa Ungmennafélag Íslands (UMFÍ), Krónan og Ungmennafélagið Afturelding (UMFA).

Engin tímataka var í hlaupinu enda áherslan öll á að fólk nyti viðburðarins, að því er fram kemur í tilkynningu.

Haft er eftir Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, að Drulluhlaupið sanni enn og aftur að fólk leiti eftir fjölbreyttum leiðum til að stunda íþróttir eitt og með öðrum og á eigin forsendum. Með hlaupinu hafi því ákalli verið svarað.

UMFÍ segir viðburðinn „einn af þeim skítugri“ sem í boði séu hér á landi.

„Í Drulluhlaupinu fara þátttakendur 3,5 kílómetra langa leið sem er vörðuð fjölmörgum hindrunum, vöðum, vötnum og lækjum sem þurfi að fara yfir, risastórum skolprörum sem þarf að troðast í gegnum og lágum netum sem þarf að skríða undir – í drullu.“

Við endamarkið hafi þátttakendur fengið viðurkenningu og getað fengið sér holla og góða næringu af Krónuhjólinu ásamt því að geta skolað af sér og farið í sund.

Fram kemur að leikkonan og lífskúnstnerinn Sandra Barilli og plötusnúður hafi allan tímann haldið uppi stuði við rásmarkið og tekið á móti þátttakendum sem komu í mark.

„Það var afar gaman að sjá gleðina og brosin hjá þátttakendum sem komu í mark eftir að hafa unnið saman að því að komast yfir hindranir á drullubrautinni,“ segir formaður UMFÍ.

Hér má sjá nokkrar myndir úr fjörinu í Mosfellsbæ á laugardag: