Fækkun sorpbrennslustöðva og hertari reglur um sorpbrennslu hafa skilað sér í miklum samdrætti í losun þrávirkra efna í andrúmloftið. Í nýrri landsskýrslu Umhverfis- og orkustofnunar um losun loftmengunarefna á Íslandi er farið fyrir þróunina á tímabilinu 1990 til 2023.
„Ástæða mikils samdráttar á losun þrávirkra lífrænna efna er að mestu minnkun á opnum bruna á úrgangi frá 1990-2004,“ segir í vef Umhverfis- og orkustofnunar.
Í umfjöllun stofnunarinnar er farið yfir þær miklu breytingar sem orðið hafa á meðhöndlun úrgangs undanfarna áratugi. Er þar fyrst nefndur til sögunnar samdáttur opins bruna á úrgangi, eða ruslabrennur, sem hafi verið algengur utan höfuðborgarsvæðisins.
„Nú á opinn bruni á úrgangi sér varla stað. Síðustu brennslunni með opnum bruna var lokað árið 2010.“
Þá hafi á árunum 1994 til 2012 viðgengist bruni á sorpi til húshitunar, með tilheyrandi losun þrávirkra lífrænna efna.
„Vegna hertra reglna um leyfilega losun hefur öllum smærri brennslustöðvum nú öllum verið lokað. Nú er einungis ein stærri sorpeyðingarstöð starfrækt.“
Þá hafi losun frá áramótabrennum farið minnkandi síðan 1990 þar sem færri brennur eigi sér stað og eftirlit með þeim sé betra. Fram kemur að leiðbeiningar um brennur frá árinu 2000 feli í sér takmörk á stærð, brennslutíma og efnisnotkun.

Eins hafi heildarmagn úrgagns sem brennt sé innanlands minnkað. Sömuleiðis hafi Kalka sorpeyðingarstöð séð um alla brennslu á sóttnæmum úrgangi, iðnaðarúrgangi og spilliefnum frá 2004, í starfsleyfi fyrirtækisins sé gerð krafa um notkun bestu fáanlegu tækni við mengunarvarnir.
„Losun þrávirkra lífrænna efna á Íslandi hefur einnig dregist saman milli 2019 og 2020. Það má að hluta til skýra vegna minni svartolíunotkunar og minni bruna á úrgangi.“
Umhverfis- og orkustofnun segir Ísland hafa staðið við skildbindingar sínar um að draga úr losun þrávirkra lífrænna efna, en kveðið sé á um þær í Árósarbókuninni um þrávirk lífræn efni og óbeint með fullgildingu Stokkhólmssamningsins.
Nánari upptalningu á losunarefnum og samdrætti losunar er að finna í umfjöllun Umhverfis- og orkustofnunar.