Belgíski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu við Ísland

Flugsveit belgíska flughersins kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur og allt að 100 liðsmenn.

Orrustuþotur belgíska flughersins, luchtcomponent.
Orrustuþotur belgíska flughersins. Mynd: Utanríkisráðuneytið/Luchtcomponent

Flugsveit belgíska flughersins, sem væntanleg er til landsins í vikunni, tekur við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi af spænska flughernum, að því er fram kemur í nýrri færslu utanríkisráðuneytisins. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur og allt að 100 liðsmenn.

„Um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Belgíu á Íslandi. Auk flugsveitarinnar tekur starfsfólk í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli þátt í verkefninu,“ segir í frétt ráðuneytisins. 

Að sögn ráðuneytisins verður framkvæmd verkefnisins með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

„Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.“

Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, og í samstarfi við Isavia.

Þá kemur fram að gert sé er ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 14. til 22. ágúst, með fyrirvara um veður.

„Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan september.“