Vatnsfellsstöð verður lokuð í tvo mánuði vegna viðgerða

Sprungur fundust í jarðlögum við inntak Vatnsfellsstöðvar.

Samsett mynd.

Landsvirkjun greindi frá því í byrjun mánaðar vinnsla hefði verið stöðvuð í Vatnsfellsstöð eftir að vart varð við leka nálægt inntaksmannvirkjum stöðvarinnar.

Fram kemur í frétt Morgunblaðsins í dag að ástæður lekans hafi verið sprunga í jarðlögum þvert á inntaksskurð stöðvarinnar.

Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir blaðinu að vegna viðgerða megi gera ráð fyrir að Vatnsfellsstöð verði ekki í notkun í allt að tvo mánuði til viðbótar.

Þá kemur fram í orðum hennar að starfsfólki Landsvirkjunar sé engin hætta búin og engum mannvirkjum á svæðinu ógnað vegna þessa. Bergið á svæðinu sé jarðfræðilega ungt og því hafi ávallt verið gert ráð fyrir atburði af þessum toga.

„Fram undan er nú vinna að nánari greiningu á stærð og dýpt sprungunnar í jarðlögunum en m.a. var stuðst við ómannaðan kafbát við könnun á stöðvarhúsi virkjunarinnar,“ segir í frétt Morgunblaðsins.

Í tilkynningu Landsvirkjunar um lekann í byrjun mánaðar kom fram að til skamms tíma væri ekki gert ráð fyrir að stöðvunin hafi áhrif á framboð raforku úr vinnslukerfi Landsvirkjunar.

Í frétt Landsvirkjunar þegar lekinn uppgötvaðist var áréttað að gott innrennsli hafi verið á öllum vatnasvæðum fyrirtækisins síðustu daga og vikur.

„Blöndulón er fullt og stærstu miðlunarlón Landsvirkjunar, Hálslón og Þórisvatn, eru við það að fyllast,“ segir þar.

Vatnsfellsstöð var gangsett 9. nóvember 2001 og er ein af sjö vatnsaflsstöðvunum Landsvirkjunar á Þjórsársvæðinu. Virkjunin er staðsett við Vatnsfellslón, upp við Þórisvatn, stærsta stöðuvatn landsins.