Nýlega hefur verið birtur á vefnum þáttur í sjónvarpsþáttaröðinni Razor Science Show þar sem fjallað er um skógareyðingu og skógleysi á Íslandi og hvernig Íslendingar vinna nú að því að klæða landið skógi á ný.

Greint er frá þættinum á vef Lands og skógar, undir yfirskrift þáttarins sjálfs: „Hvernig rækta má skóg í skóglausu landi“.
Í þættinum er fjallað um verkefni á borð við Hekluskóga, hvernig eyðingaröflin hafi verið stöðvuð á Þórsmörk og um ræktun fjölbreyttra skóga á landinu.
Fram kemur að þáttaröðin Razor Science Show sé framleidd í Evrópudeild kínversku ríkissjónvarpsstöðvarinnar CGTN.
Dagskrárgerðarkonan Gabrielle Lawrence ræðir í þættinum við nokkra fulltrúa Lands og skógar.

„Samson Bjarnar Harðarson og Hrefna Jensdóttir segja henni frá hnignun landgæða á Íslandi, hvernig skógarnir hurfu og landið blés upp og hvernig unnið er að því að klæða landið á ný, til dæmis með Bonn-verkefnum í grennd við Heklu og víðar,“ segir í frétt Lands og skógar.
Þá útskýri Aðalsteinn Sigurgeirsson meðal annars hvernig nýta megi harðgerar frumherjategundir á svæðum nærri sjó til að búa til skjól sem búi með tímanum kröfuharðari tegundum skilyrði til að vaxa upp.
„Loks er í þættinum farið á Þórsmörk þar sem Hreinn Óskarsson og Chas Goemans segja frá því hvernig svæðinu var bjargað á síðustu stundu frá því að blása upp með öllu og hvernig birki og annar gróður hefur náð að breiðast þar um á ný.“
Land og skógur segir þáttinn gefa góða hugmynd um markmiðin og aðferðirnar sem beitt er við skógrækt hér á landi. Með því að elta hlekkinn hér á eftir má sjá allan þáttinn á vef Youtube: How do you grow trees in a treeless land.