Í lok árs verður hér á landi hætt öllum stuðningi við tæki sem reiða sig á 2G og 3G tækni til að tengjast netinu.
Lokunin fer fram í áföngum en á að ljúka hjá öllum fjarskiptafyrirtækjum í síðasta lagi í árslok 2025, að því er fram kemur í nýrri tilkynningu Neytendastofu, sem vekur athygli á fyrri fréttum Fjarskiptastofu og Vöruvaktarinnar um lokun 2G og 3G farsímaþjónustunnar.
„Þetta leiðir m.a. til þess að tæki sem aðeins styðja 2G/3G hætta að virka. Þetta geta verið símtæki, snjallúr og ýmis vöktunartæki,“ segir í frétt Neytendastofu.
Bent er á að hjá framleiðanda tækja sé hægt að leita upplýsinga um hvaða fjarskiptanet þau nota.
„Þegar neytendur kaupa vörur ber seljendum að veita þeim skýrar og ítarlegar upplýsingar um vöruna. Þetta tekur t.d. til upplýsinga um tæknilega eiginleika vörunnar. Frá því að lokunin lá fyrir hefur seljendum tækja sem styðja eingöngu 2G/3G því borið að upplýsa neytendur um væntanlega lokun og áhrif hennar á notkun tækisins.“
Neytendastofa bendir á að hafi seljandi tækis ekki veitt þessar upplýsingar megi mögulega líta svo að tækið teljist gallað og fólk geti átt rétt á úrbótum af þeim sökum.
„Neytendastofa hvetur neytendur til að athuga hvort tækin þeirra séu háð 2G/3G og ef svo er að kanna hvort tækin styðji uppfærslu í 4G eða 5G.“
Í tilkynningu Fjarskiptastofu um breytinguna í apríl síðastliðnum segir að síðastliðna áratugi hafi 2G og 3G fjarsímaþjónusta þjónað mikilvægu hlutverki, en hún standist ekki lengur kröfur nútímans um háhraða gagnaflutning. Því séu 2G og 3G netin víðast hvar í heiminum að víkja fyrir nútímalegri tækni sem styðjist við 4G og 5G.
„Tilgangurinn með innleiðingu þessarar nýju tækni er að bæta upplifun viðskiptavina til lengri tíma og vera í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar með auknum hraða, betri svartíma o.fl.,“ segir í færslu stofnunarinnar.
Þá er tekið saman í þrjá punkta hvað breytingin feli í sér fyrir fólk:
- Símtæki og tæki sem aðeins styðja 2G/3G hætta að virka.
- Símtæki sem ekki styðja VoLTE (Voice over LTE) eða hafa ekki virkjað þá stillingu hætta að virka.
- Ýmis tæki til vöktunar, mælinga og stýringa, sem aðeins styðja 2G/3G, hætta að virka.
Verði fólk vart við breytingar á farnetssambandi eftir að 2G og 3G sendar hafa verið teknir niður, þá segir Fjarskiptastofa fyrsta skrefið vera að athuga hvort tæki fólks styðji 4G eða 5G og hvort framleiðandi eða seljandi tækisins hafi virkjað VoLTE í tækinu.
Eins geti fólk leitað á náðir þess fjarskiptafyrirtækis þar sem það er í viðskiptum og fengið leiðbeiningar.
Tenglar á upplýsingar hjá helstu fjarskiptafyrirtækjum landsins:
- Nova: https://www.nova.is/netid/bless-3g
- Síminn: https://www.siminn.is/2g-3g
- Vodafone: https://vodafone.is/vid-kvedjum-2g-og-3g