Atvinnuleysi í júlí mældist 3,4 prósent

Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi fari hækkandi í ágúst og verði 3,5%

Mynd: Shivendu Shukla á Unsplash

Skráð atvinnuleysi í júlí var 3,4 prósent og hélst óbreytt frá fyrra mánuði mánuði. Samkvæmt nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar er hins vegar um 0,3 prósentustiga aukningu á milli ára, því í júlí 2024 var atvinnuleysi 3,1 prósent.

„Að meðaltali voru 7.448 atvinnulausir í júlí, 4.288 karlar og 3.160 konur. Meðalfjöldi atvinnulausra hækkaði um 50 manns milli mánaða.“

Fram kemur í tölum stofnunarinnar að atvinnuleysi hafi verið mest á Suðurnesjum í júlí eða 5,6 prósent og haldist óbreytt milli mánaða.

Minnst hafi atvinnuleysi verið á Norðurlandi vestra, eða 1,0 prósent.

„Atvinnulausir voru 7.811 í lok júlí, 4.445 karlar og 3.366 konur.“

Vinnumálastofnun segir að alls hafi komið inn 164 ný störf sem auglýst hafi verið í vinnumiðlun stofnunarinnar í júlí.

Í mánuðinum hafi jafnframt verið gefin 328 atvinnuleyfi til erlendra ríkisborgara, þar af 279 á höfuðborgarsvæðinu. 299 einstaklingar hafi verið á ráðningarstyrk innan fyrirtækja eða stofnana og tíu einstaklingar á nýsköpunarstyrk.

Mánaðarskýslu Vinnumálastofnunar um vinnumarkaðinn í júlí má nálgast HÉR.