Einungis tvisvar áður hefur snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði í Esju horfið fyrr á árinu, að því er fram kemur í nýrri umfjöllun Veðurstofu Íslands.
Veðurstofan hefur eftir Árna Sigurðssyni, sérfræðingi í mælarekstri hjá Veðurstofunni, líklegast hafi síðasti snjórinn bráðnað þann 5. eða 6. ágúst.
„Hann bendir á að aðeins tvisvar áður sé vitað um að skaflinn hafi horfið fyrr á árinu en það var árið 1941 og aftur 2010, en þau ár hvarf hann í júlí.“

Fram kemur að eftir 2010 hafi kólnað lítillega á ný, og skaflinn aðeins horfið árið 2012 og 2019, bæði á haustin – í september.
„Árið 2023 hvarf hann kringum 26. ágúst og árið 2024 kringum 19. ágúst. Nú, árið 2025, hverfur hann fyrr en öll þessi ár, og markar því tímamót: þetta er fyrsta skiptið í 15 ár sem hann hverfur fyrir lok ágústmánaðar.“
Talið er að hlýindakafli í maí hafi haft afgerandi áhrif í ár, ásamt snjóléttum vetri og þurru, björtu sumri á suðvesturhorninu.
Samverkandi áhrif slíkra skilyrða, það lítillar snjómyndunar að vetri og hlýinda snemma sumars, eru sögð hafa stuðlað að því að skaflinn hafi bráðnað fyrr en venjulega.
Í umfjöllun Veðurstofunnar er farið yfir sögu skaflsins í Gunnlaugsskarði og hann lengi sagður hafa vakið athygli íbúa við sunnanverðan Faxaflóa. Hann sé oft talinn óformlegur mælikvarði á tíðarfar á höfuðborgarsvæðinu, en fylgst hafi verið með honum allt frá 19. öld, bæði með mælingum og munnlegum heimildum.
Helsti sérfræðingur um skaflinn í seinni tíð var Páll Bergþórsson, fyrrverandi forstjóri Veðurstofu Íslands, en nú hefur Árni Sigurðsson tekið við þessu hlutverki.
„Samkvæmt upplýsingum frá Árna hafði Jón Erlendsson á Mógilsá eftir Kolbeini Eyjólfssyni í Kollafirði, að fönnin í Gunnlaugsskarði hafi aldrei horfið á tímabilinu 1863 til um 1900.“

Fyrsta staðfesta hvarf skaflsins er sagt hafa verið í ágúst 1929, og næstu ár, einkum á tímabilinu 1931 til 1936, hafi hann horfið árlega og þá yfirleitt í ágúst.
„Árið 1941 hvarf hann í júlí, sem þótti þá fordæmalaust. Sama gerðist á ný árið 2010.“
Eftir 1964 hafi hafist kuldatímabil sem staðið hafi í þrjá áratugi.
„Skaflinn breyttist smám saman í íshellu sem hvarf ekki fyrr en í ágúst 1998. Þá tók við hlýindaskeið: frá 2001 til 2010 hvarf skaflinn öll sumur, oft í ágúst og stundum seint í september.“
Eftir 2010 hafi kólnaði lítillega á ný og skaflinn aðeins horfið árin 2012, 2019, 2023 og 2024 – öll í ágúst.
„Sumarfannir Esju gefa innsýn í þróun veðurfars til lengri tíma. Skaflinn í Gunnlaugsskarði er lifandi dæmi um hvernig samspil vetrar og sumars, kulda og hlýinda, verður mælanlegt og sýnilegt í nærumhverfi okkar,“ segir í umfjöllun Veðurstofunar.
Áhugasamir geta nálgst alla umfjöllunin HÉR.