Á laugardag varð vart við leki við inntaksmannvirki Vatnsfellsstöðvar Landsvirkjunar. Vatnsfellstöð er sú efsta af virkjunum Landsvirkjunar á Þjórsársvæðinu.
Vinnsla var stöðvuð í virkjuninni þegar lekans varð vart, að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar.
„Ákveðið var að tæma inntakslónið svo hægt sé að greina nánar ástæður lekans,“ segir þar.
Inntakslónið er sagt lítið og gert ráð fyrir að tæmingu þess ljúki á morgun, mánudaginn fjórða ágúst.
Í frétt Landsvirkjunar segir að gott innrennsli hafi verið á öllum vatnasvæðum fyrirtækisins síðustu daga og vikur.
„Blöndulón er fullt og stærstu miðlunarlón Landsvirkjunar, Hálslón og Þórisvatn, eru við það að fyllast.“
Þar segir að til skamms tíma komi stöðvun Vatnsfellsstöðvar ekki til með að hafa áhrif á framboð raforku úr vinnslukerfi Landsvirkjunar.
„Möguleg áhrif til lengri tíma verða ekki ljós fyrr en lónið er tómt og ástæður lekans hafa verið greindar.“
Á upplýsingasíðu Landsvirkjunar um Vatnsfellsvirkjun kemur fram að Vatnsfellsstöð hafi verið gangsett 9. nóvember 2001 og sé ein af sjö vatnsaflsstöðvunum fyrirtækisins á Þjórsársvæðinu. Virkjunin er staðsett við Vatnsfellslón, upp við Þórisvatn, stærsta stöðuvatn landsins.
„Vatnsfellsstöð nýtir fallið í veituskurðinum á milli Þórislóns og Krókslóns sem er uppistöðulón Sigöldustöðvar. Stöðin er í rekstri þegar vatni er miðlað úr Þórisvatni yfir í Krókslón.“
Vatnsfellsstöð er sögð í fullum rekstri yfir vetrarmánuðina þegar þörf sé á miðlun vatns úr Þórisvatni. Það geri að verkum að ekki sé þörf á sérstöku uppistöðulóni ofan stöðvarinnar og geri það virkjunarkostinn umhverfisvænni en ella.
„Framkvæmdir við stöðina hófust sumarið 1999, en fyrri vél hennar var gangsett í nóvember 2001. Afl stöðvarinnar er 90 megavött og nýtir hún 65 metra fallhæð.“