Breyting sem ekki hefði verið möguleg án stuðnings Íslands

Að þessu sinni var markmiðið að nýta jarðhita ekki bara til húshitunar, heldur einnig í atvinnulífi bæjarins, svo sem í fiskeldi, þurrkun og ferðaþjónustu.

Beiuș í Rúmeníu. Mynd: Umhverfis- og orkustofnun.

Bærinn Beiuș í Rúmeníu stefnir á að verða fyrsta 100% jarðhitaborg Rúmeníu. Fram kemur á vef Umhverfis- og orkustofnunar að að þessu marki hafi verið unnið með stuðningi Íslands.

„Nýlega lauk sex mánaða rannsóknarverkefninu „Tækniþróun hitaveitunnar í Beiuș“, undir stjórn Umhverfis- og orkustofnunar í samstarfi við bæinn Beiuș í Rúmeníu, Arctic Green í Ungverjalandi og Háskólann í Cluj-Napoca í Rúmeníu,“ segir á vef stofnunarinnar.

Verkefnið er sagt hafa leitt í ljós að unnt væri að auka nýtingu jarðhita til að hita öll hús í bænum, en þegar séu nær 70 prósent bygginga í bænum hituð með jarðvarma.

„Auk þess er mögulegt að nýta jarðhita einnig í atvinnulífi t.d. í fiskeldi, þurrkun og ferðaþjónustu.“

Verkefnið er sagt styrkt af Uppbyggingarsjóði EES sem Innovation Norway hafi annast annaðist.

„Verkefnið byggði á sérfræðiþekkingu frá Íslandi og Mið-Evrópu. Umhverfis- og orkustofnun annaðist verkefnisstjórn, bærinn Beiuș sá um staðbundin atriði, s.s. aðgengi að gögnum og samráð við innlenda hagsmunaaðila.“

Fyrirtækið Arctic Green í Ungverjalandi hafi unnið tækniúttekt og hagkvæmnismat, og Háskólinn í Cluj-Napoca lagt áherslu á hönnun og útfærslu hitadælukerfa og fjarvöktun.

„Markmiðið var að greina jarðhitageyminn nánar, auka skilvirkni hitaveitukerfisins og skoða nýja tækni, m.a. varmadælur og endurnýtingu frárennslis í atvinnustarfsemi.“

Verkefnið er sagt hafa leitt í ljós að bora þyrfti tvær nýjar vinnsluholur og allt að fimm niðurdælingarholur, setja upp varmadælur sem skili 7 MW viðbótarafköstum, endurnýja pípulagnir og einangra byggingar betur og byggja hitageymslur til að jafna álag.

Verkefnið mun vera framhald af svipuðu verkefni frá 2017, sem unnið var í samstarfi Orkustofnunar, bæjarins Beiuș, verkfræðistofunnar Mannvits í Ungverjalandi, ISOR og Árna Gunnarssonar.

„Nú er markmiðið að nýta jarðhita ekki aðeins til húshitunar, heldur einnig í atvinnulífi bæjarins t.d. í fiskeldi, þurrkun og ferðaþjónustu. Meðal nýrra verkefna er vatnagarðurinn Aquapark Beiuș, sem hitaður verður upp með jarðhita,“ segir á vef Umhverfis- og orkustofnunar.


Gabriel Popa, bæjarstjóri Beiuș, leggur áherslu á góða reynslu og mikilvægi samstarfsins við Ísland.

„Við stefnum að því að verða fyrsta 100% jarðhitaborg Rúmeníu. Þessi umbreyting hefði ekki verið möguleg án íslensks stuðnings,“ sagði hann á lokaráðstefnu verkefnisins.

Bæjarstjórinn þakkaði sérstaklega öllum sem komu að verkefninu fyrir vel unnin störf og sérstaklega verkefnisstjóra þess, Baldri Péturssyni, fyrir samstarfið bæði 2017 og 2025.

Samstarfsaðilar rannsóknarverkefnisins í Beiuș í Rúmeníu. Mynd: Umhverfis- og orkustofnun.