Nemendur í grunnskólum voru 47.162 haustið 2024 og fækkaði um 345 frá haustinu 2023, eða um 0,7 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Tölurnar byggja á upplýsingum um nemendur í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.
„Alls störfuðu 174 grunnskólar á landinu skólaárið 2024-2025 sem er fækkun um einn skóla frá fyrra ári. Einkareknir grunnskólar voru 13 talsins með tæplega 1.560 nemendur og hafa nemendur í einkaskólum á grunnskólastigi ekki verið fleiri. Í sérskólum reknum af opinberum aðilum, sem eru þrír talsins, stunduðu 186 nemendur nám.“
Færri fámennir skólar
Hagstofan segir að fámennum grunnskólum hafi farið fækkandi. Minni skólum hafi ýmist verið lokað eða þeir orðið deildir í stærri grunnskólum.
„Haustið 2004 voru 19 skólar með færri en 25 nemendur en haustið 2014 hafði þessum fámennustu skólum fækkað niður í 14. Þeir voru 10 haustið 2024.“
Nemendum með erlent móðurmál og ríkisfang fjölgar enn
Þá kemur fram að nemendum með erlent tungumál að móðurmáli hafi fjölgað ár frá ári. Haustið 2024 hafi 7.661 grunnskólanemendur verið með erlent tungumál að móðurmáli, eða 16,2 prósent nemenda, og hafi hlutfallið aldrei verið hærra.
„Hafa ber í huga að hluti þessara nemenda hefur einnig íslensku sem móðurmál. Af þeim nemendum sem hafa erlent móðurmál voru 847 í 10. bekk, og hafa að líkindum flestir þeirra sótt um nám í framhaldsskólum haustið 2025.“
Hagstofan segir algengasta erlenda móðurmál nemenda í grunnskólum vera pólska sem sé töluð af rúmlega 2.200 nemendum. Næstalgengasta erlenda tungumálið er svo spænska, sem rúmlega 600 börn hafa sem móðurmál. Tæplega 600 börn tala arabísku og lítið eitt færri hafa ensku sem móðurmál.
Þá segir Hagstofan að grunnskólanemendum með erlent ríkisfang hafi einnig fjölgað frá fyrra ári og hafi aldrei verið fleiri. Þeir hafi verið 5.368 haustið 2024 og fjölgað um tæplega 400, eða um 7,9 prósent, frá árinu áður. Nemendum með íslenskt ríkisfang hafi fækkað um 737 á milli áranna 2023 og 2024.