Hressileg hröðun getur verið holl fyrir rafhlöður bíla

Hefðbundnar prófanir hafa gefið ranga mynd af endingu bílarafhlaðna. Jöfn aflhleðsla virðist hafa lakari niðurstöðu en breytilegt álag.

Rafbíll á ferð. Mynd: Hyundai.is

Aukið getur líftíma rafhlöðu rafbíla að stíga af og til hressilega á straumgjöfina, eða orkufótstigið, samkvæmt því sem fram kemur í nýrri umfjöllun á fréttavef Félags íslenskra bifreiðaeigenda.

Vitnað er til nýrrar rannsóknar frá Stanford háskóla sem bendi til þess að regluleg hraðaaukning og breytilegt álag geti aukið endingu drifrafhlaðna í rafbílum.

Umfjöllun Nature um hleðslu rafhlaðna.

FÍB segir marga ökumenn rafbíla vera tvístígandi um hvort hressileg inngjöf sé neikvæð eða jákvæð fyrir rafhlöðuna. Óttinn kunni að vera ástæðulaus samkvæmt niðurstöðum þeim sem birtar hafi verið í vísindaritinu Nature.

„Í tvö ár rannsökuðu vísindamennirnir 92 mismunandi rafhlöður sem voru hlaðnar og afhlaðnar með misjöfnum aðferðum. Markmiðið var að fylgjast með því hvernig ástand drifrafhlöðu versnar með tímanum. Sumar rafhlöðurnar voru tæmdar með jöfnum straumi, eins og gert er í hefðbundnum prófunum, en aðrar með breytilegu álagi sem líkist meira raunverulegri akstursnotkun,“ segir á fréttavef FÍB.

Niðurstaðan hafi svo verið nokkuð afgerandi.

„Rafhlöðurnar sem voru í breytilegri, dýnamískri, afhleðslu héldu allt að 38% betri rafhlöðuheilsu en þær sem voru tæmdar með stöðugum straum.“

Rannsóknin hafi sömuleiðs leitt í ljós að hefðbundin rafhlöðupróf, þar sem afhleðsla er stöðug og jöfn, endurspegli ekki raunverulega notkun í akstri.

„Rafhlöður í rafbílum eru undir síbreytilegu álagi. Hröðunin er er mjög mismunandi í raunverulegum akstri. Er verið að hægja á hraða eða aka upp halla? Þetta misjafna álag virðist bæði skaðlaust og jákvætt fyrir endingu rafhlaðna.“

Í umfjöllun FÍB er rannsóknin sögð líkleg til að hafa áhrif á prófanir og mat á endingu drifrafhlaðna í framtíðinni og nálgun við notkun rafbíla.