Engar vísbendingar um fjármögnun gereyðingarvopna

Ríkislögreglustjóri hefur gefið út sitt fyrsta áhættumat á fjármögnun gereyðingarvopna, sem er viðbót við áhættumat um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem kom út í lok árs 2023, að því er fram kemur í tilkynningu á vef lögreglunnar.

Fram kemur að engar vísbendingar séu um að slík fjármögnun hafi átt sér stað hér á landi, né heldur um brot eða sniðgöngu á alþjóðlegum þvingunaraðgerðum.

„Ísland telst því áhættulítið land í þessu samhengi. Þrátt fyrir það er lögð áhersla á að viðhalda árvekni og styrkja fyrirbyggjandi aðgerðir þar sem þróun á þessu sviði er síbreytileg og aðilar sem stunda slíka starfsemi leita sífellt nýrra leiða.“

Áhættumatið er sagt unnið í samræmi við lög um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna og gert með því markmiði að greina og meta áhættu á fjármögnun gereyðingarvopna með heildstæðum hætti.

„Áhættumatið byggir á greiningu á þremur flokkum ógna: ríki sem sæta þvingunaraðgerðum (Norður-Kórea og Íran), aðilar óháðir ríki og útflutningur á hlutum með tvíþætt notagildi.“

Í öllum tilvikum er áhættan metin sem lítil en mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi fræðslu, eftirlit og samstarf innanlands og við alþjóðlega aðila, er áréttað.

Í inngangi skýrslunnar segir að ríki sem sæti þvingunaraðgerðum leiti ávallt nýrra leiða til að fjármagna gereyðingarvopn.

„Eftir því sem önnur ríki herða regluverk og auka eftirlit verður Ísland fýsilegri kostur fyrir slíka brotastarfsemi. Öflugar fyrirbyggjandi aðgerðir, reglulegt áhættumat, regluverk sem er uppfært eftir þörfum og skilvirkt eftirlit eru lykilþættir í að draga úr hættu á að Ísland verði nýtt sem milliliður eða skjól fyrir fjármögnun gereyðingarvopna,“ segir þar.

Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér.