Temu talið brjóta gegn reglum um stafræna þjónustu

Kínverski verslunarrisinn gæti staðið frammi fyrir yfir 500 milljarða króna sekt.

Mynd af vef Temu.

Kínverska vefverslunin Temu hefur brotið gegn reglum Evrópusambandsins um stafræna þjónustu, svonefndri DSA-löggjöf ESB, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu framkvæmdastjórnar ESB.

Í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar, sem birt var í dag, kemur fram að verslunarrisinn sé talinn hafa vanrækja skyldur sínar til að meta áhættu vegna ólöglegrar vöru sem kunni að vera boðin til sölu á vettvangi verslunarinnar.

Framkvæmdastjórnin segir gögn sem aflað hafi verið benda til að mikil hætta sé á að neytendur í Evrópu, en reglurnar ná til innri markaðarins og Íslands þar á meðal, geti rekist á ólöglegar eða óöruggar vörur á Temu. Sér í lagi er það sagt eiga við um barnaleikföng og smá raftæki.

Fram kemur að framkvæmdastjórnin heldur áfram rannsókn sinni á þessum og öðrum mögulegum brotum Temu, sem nú gefist kostur á að nýta andmælarétt sinn, fara yfir gögn sem aflað hafi verið og veita skrifleg svör.

„Ef bráðabirgðaniðurstöður framkvæmdastjórnarinnar verða staðfestar gæti það leitt til formlegrar ákvörðunar um brot á 34. grein DSA,“ segir í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.

Segir þar jafnframt að ákvörðun um brot gæti falið í sér sekt sem næmi allt að sex prósentum af árstekjum Temu á heimsvísu, auk kvaða um úrbætur. Þá gæti komið til aukið eftirlit með fyrirtækinu.

Vefleit leiðir í ljós að árlegar tekjur Temu hafi verið áætlaðar tæpur 71 milljarður Bandaríkjadala, eða sem svarar til um 8.600 milljarða íslenskra króna. Sektarupphæðin gæti því numið allt að 519 milljörðum íslenskra króna.