Fjöldi fólks mótmælir banni við bragðefnum í nikótínvörum

Fjöldi notenda veips og munnpúða harma fyrirhugað bann við notkun bragðefna og árétta hvernig vörurnar hafi hjálpað þeim að hætta að reykja.

Í veipsjoppu. Mynd: E-Liquids UK / Unsplash.

Fjöldi almennra notenda hefur nýtt samráðsgátt stjórnvalda til að mótmæla fyrirhuguðu banni á notkun bragðefna í veip-sígarettur og skyldar vörur.

Yfir níutíu prósent innsendra umsagna eru frá notendum slíkra vara sem ýmist mótmæla eða lýsa í mislöngu máli hvernig notkun veips og munnpúða hafi hjálpað þeim að hætta að reykja sígarettur. Af 190 innsendum umsögnum um málið eru 175 frá fólki sem mótmælir fyrirhuguðum breytingum.

Í umsögn heilbrigðisráðuneytisins með frumvarpsdrögunum er bent á þörfina á því að sameina ákvæði laga um tóbaksvarnir og ákvæði laga um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur í eina heildarlöggjöf um varnir gegn tóbaks- og nikótínvörum.

„Í ljósi þess hve notkunin er útbreidd og að um er að ræða vörur sem er ávanabindandi og skaðlegar heilsu er brýn þörf á frekari aðgerðum og ljóst miðað við notkun ungmenna að ákvæði laga um aldurstakmörk, sýnileikabann, auglýsingabann o.fl. hafa dugað skammt,“ segir í rökstuðningi ráðuneytisins.

Þá eru í frumvarpsdrögunum gengið lengra í breytingum með því  að setja takmarkanir á sölu nikótínvara sem innihalda bragðefni sem höfði til barna, en það er sú breyting sem mest virðist fara fyrir brjóstið á því fólki sem sent hefur inn umsögn um málið.

Bent er á að 2023 hafi verið lagt bann við tóbaksvörum með einkennandi bragði, en það taki gildi 11. júní 2028.

„Lagt er til að sömu reglur gildi um notkun sígarettna og rafrettna, ennfremur að umbúðir nikótínvara verði einsleitar líkt og gildir um umbúðir tóbaksvara. Þá er lagt til að óheimilt verði að selja tóbaks- og nikótínvörur í netsölu, framleiðsla tóbaks- og nikótínvara verði leyfisskyld og söluaðilum verði gert skylt að spyrja kaupendur um skilríki.“

Framleiðendur, söluaðilar og fulltrúar þeirra hafa einnig mótmælt fyrirhuguðum breytingum og þá kemur fram nokkuð hörð gagnrýni á málið í umsögnum félagasamtaka atvinnulífsins.

Er þar meðal annars bent á að óljóst sé til hvers sé vísað þegar rætt er um bragðefni sem höfði til barna, auk þess sem fyrirhugað bann við netsölu skerði verulega viðskiptafrelsi og möguleika neytenda til að stunda lögmæt viðskipti með löglegar vörur.

Í umsögn Félags atvinnurekenda er jafnframt bent á að í ýmsum öðrum vöruflokkum hafi ekki þótt ástæða til að setja á bragðefnabann þótt ástæða væri til að takmarka neyslu barna á viðkomandi vörum.

Þannig séu seldir áfengir drykkir með margs konar ávaxta- og sælgætisbragði, en ákvæði um aldursmörk, upplýsing og forvarnastarf hafi þótt duga til að halda börnum frá neyslu þeirra.

„FA telur mun skynsamlegri og skilvirkari leið til að vinna gegn notkun barna og ungmenna á nikótínvörum að hafa skilvirkt eftirlit með því að núgildandi lagaákvæði séu virt, fremur en að hafa vit fyrir fullorðnu og sjálfráða fólki um það hvaða vörur það kaupir,“ segir í umsögn félagsins.