Ísland hefur náð sýnu mestum árangri ríkja EES við að draga úr innleiðingarhalla tilskipana og reglugerða Evrópusambandsins sem EFTA ríkin taka upp. Þetta má sjá í nýrri reglubundinni skýrslu ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, um innri markaðinn.
Tölfræði ESA sýnir að ríkin öll, Ísland, Liechtenstein og Noregur, hafi náð árangri við að draga úr innleiðingarhalla sínum. Meðalinnleiðingarhalli EFTA ríkjanna er nú 0,9%.
„Þetta er lægsti innleiðingarhalli sem mældur hefur verið fyrir tilskipanir frá desember 2021. Meðaltal innleiðingarhalla reglugerða á Íslandi og í Noregi lækkaði einnig úr 1,1% í 0,9%,“ segir í tilkynningu ESA.
Fram kemur að Ísland hafi náð verulegum árangri við innleiðingu á tilskipana og minnkað innleiðingarhalla þeirra úr 2,1% í 1,4%.
Sömuleiðis hafi dregið úr innleiðingarhalla reglugerða. Við síðustu mælingu voru útistandandi 65 reglugerðir, sem jafngilti 1,4% halla, en þeim hefur nú fækkað í 44, sem jafngildir 0,9% halla.
Innleiðingarhalli Liechtensteins fyrir tilskipanir hefur líka batna lítillega, samkvæmt samantekt ESA, farið úr 0,6% í 0,5%.
Þá hafi Noregur aukið innleiðingu tilskipana ESB milli mælinga og minnkað hallan úr 1,2% í 0,9%, en á sama tíma hafi innleiðingarhalli reglugerða aukist í 0,9% (45 útistandandi reglugerðir) úr 0,7% (31 reglugerð).

ESA birtir stigatöflu innri markaðarins tvisvar á ári til að veita yfirsýn yfir fjölda tilskipana og reglugerða sem enn þarf að innleiða í EFTA-ríkjunum innan EES. Þessar nýjustu tölur sýna stöðuna í EFTA-ríkjunum þann 31. maí 2025.
ESA hefur eftirlit með því að framgangi EES samningsins til að tryggja að einstaklingar og fyrirtæki geti notið réttinda sinna og ávinnings samkvæmt honum. að því er fram kemur í frétt stofnunarinnar.
Hér má skoða nýjustu samantekt um stöðu innleiðingar ríkjanna á tilskipunum og reglugerðum Evrópusambandsins samkvæmt EES-samningnum.