Aflamagn sem erlend skip lönduðu árið 2024 nam 133 þúsund tonnum sem er níu prósenta aukning frá fyrra ári, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands.
Um 90 prósent voru uppsjávarafli og fór beint í bræðslu. Átta prósent aflans eru svo sögð hafa verið fryst rækja í gáma til útflutnings og eitt prósent botnfiskar til vinnslu innanlands.
Hagstofan segir að árið 2024 hafi aflaverðmæti erlendra landana við fyrstu sölu verið rúmlega 9,4 milljarðar króna, 61 prósent vegna uppsjávarfiska, 29 prósent fyrir frosna rækju og níu prósent fyrir botnfisktegundir.
