Almenningi býðst að taka þátt í landvöktun

Almenningi um allt land gefst kostur á að taka þátt í verkefninu Landvöktun og fylgjast með þróun gróðurfars og jarðvegs á sínu svæði.

Mynd: Land og skógur

Landvöktun – lykillinn að betra landi nefnist lýðvísindaverkefni sem gerir landeigendum og öðrum áhugasömum kleift að kynnast landinu sínu á nýjan hátt, að því er fram kemur nýrri frétt á vef Lands og skógar.

Með þátttöku sinni er fólk sagt geta fylgst með þróun gróðurfars og jarðvegs á völdu svæði og einnig haft áhrif á hvernig ástand landsins breytist í framtíðinni. Það gefi fólki færi á að læra um landið sitt og um leið möguleika til að leggja sitt af mörkum til að bæta landið.

Verkefnið fer fram með einföldum hætti að sögn Lands og skógar.

Þátttakendur ákveða sjálfir hvaða land þeir vakta og sinna vöktuninni á þeim tíma sem hentar þeim best. Snjallsímar eru notaðir til þess að skrá upplýsingar um ástand gróðurfar og jarðvegs. Þessi gögn eru síðan nýtt, ásamt öðrum gögnum, til að meta ástand landsins og bæta ákvarðanir sem snúa að sjálfbærri landnýtingu og endurheimt landgæða þar sem þörf er á.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Grólindar, www.grolind.is/landvoktun.