Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri, að því er fram kemur í frétt dómsmálaráðuneytisins. Alls bárust 250 umsóknir, en fram kemur að inntökupróf í námið hafi svo staðið yfir mest allan aprílmánuð.
Að þeim loknum liggur fyrir að 96 nýnemar hefji nám við skólann í haust og mun það vera metfjöldi nýnema í náminu.
Haft er eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að hún óski öllum þeim sem hefji lögreglunám í haust hjartanlega til hamingju.
„Það er stór áfangi að fá að hefja slíkt nám og óska ég þeim velfarnaðar í sínu námi. Ég er ótrúlega ánægð með þennan mikla áhuga og vona að hann haldi áfram á næstu árum,“ sagði hún.
Fram kemur að í janúar síðastliðnum hafi dómsmálaráðherra kynnt áform sín um að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu á þessu ári.
„Þannig var bæði ákveðið að fjölga bæði stöðugildum innan lögreglunnar um land allt en líka fjölda þeirra sem fá inngöngu í nám við lögreglufræði,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Ráðherra er jafnframt sagður hafa hvatt alla áhugasama um fjölbreytt og krefjandi starf í þágu samfélagsins til að sækja um námið.
Fram kemur að unnið sé að því að fjölga nemendum enn frekar á þessu kjörtímabili.
Metfjöldi brautskráðra næstu árin
Þá segir að auk nýnema haustsins hefji um 80 nemendur síðara námsárið.
„Alls verða því um 176 nemendur í námi í lögreglufræðum næsta vetur, bæði á fyrra og seinna ári, og má gera ráð fyrir að það skili sér í metfjölda brautskráðra næstu árin.“
Fram kemur að árið 2024 hafi alls verið 795 lögreglumenn við störf á Íslandi, að frátöldum nemum og héraðslögmönnum.
„Brottfall innan lögreglu er umtalsvert og hefur aukist á undanförnum árum. Áform eru um að greina ástæður brottfalls innan lögreglunnar og leita leiða til að snúa þeirri þróun við.“