Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimila hafi aukist um níu prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025 í samanburði við sama tímabil fyrra árs, að því er kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.
Ráðstöfunartekjur á mann numu tæplega 1,6 milljónum króna á fjórðungnum og jukust um 7,5 prósent á milli ára. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar áætlar Hagstofan að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 3,2 prósent, en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,2 prósent á sama tímabili.
Vakin er athygli á því að samhliða þessari útgáfu hefur tímaröð tekjuskiptinga- og framleiðsluuppgjörs verið endurskoðuð í samræmi við heildarendurskoðun tímaraða þjóðhagsreikninga. Heildarendurskoðun tímaraða framleiðsluuppgjörs þjóðhagsreikninga hefur bein áhrif á stærðir innan tekjuskiptingaruppgjörs.

Fram kemur í tölum Hagstofunnar að heildartekjur heimilanna hafi aukist um 7,4 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung árið 2024. Liðurinn sem hvað þyngst vegur í aukningu heildartekna er launatekjur, en þær eru sagðar hafa aukist um 7,9 prósent á milli ára. Eignatekjur jukust um sex prósent en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 10,3 prósent á tímabilinu.
Þá eru heildargjöld heimilanna sögð hafa aukist um 5,4 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung árið áður.
„Skattgreiðslur jukust um 4,1% og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 5,2% á tímabilinu. Eignagjöld jukust um 1,5% á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Þar af jukust vaxtagjöld um 1,6%.“
Hagstofan slær þann varnagla í frétt sinni að um bráðabirgðaniðurstöður sé að ræða, en birtar verði endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggi endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.
