Framleiðsla bíla í auknum mæli færð frá Kína til Evrópu

Kínverskir bílaframleiðendur á borð við BYD, Chery, og Leap Motor eru að hefja framleiðslu í Evrópu til að forðast tolla og styrkja eigin ímynd á evrópska markaðnum, segir FÍB.

Mynd: Volvo Car Corporation

Volvo hefur ákveðið að flytja framleiðslu á minnstu rafbílategund sinni, EX30, frá Kína til Belgíu, að því er fram kemur í frétt Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).

FÍB segir að breytingin komi til með að stytta afhendingartíma innan Evrópu og komi framleiðslunni undan tollum Evrópusambandsins á kínverska rafbíla.

„Bílar framleiddir í Evrópu eru í vaxandi mæli orðnir fyrsta val evrópskra neytenda. Veljum evrópskt höfðar til neytenda á tímum tollaátaka og óvissu í efnahagsmálum,“ segir í umfjölluninni

Fram kemur að Volvo EX30 rafbíllinn hafi fram að þessu verið framleiddur í Kína af Geely, en það sé öflugur kínverskur bílaframleiðandi og stærsti hluthafi Volvo Cars.

„EX30 nýtur mestrar hylli í Evrópu og þess vegna stækkaði Volvo verksmiðjur sínar í Belgíu til að geta framleitt EX30 ásamt EX40 og EC40. Með hækkun tolla á kínverska rafbíla í Evrópu hefur þessi ákvörðun reynst heppileg.“

Verksmiðjan í Gent í Belgíu er sögð geta framleitt allt að 1.500 EX30 bíla á viku, eða um einn á 67 sekúndna fresti. Þá komi meira en helmingur allra íhluta í rafbílinn nú þegar frá Evrópu, en stefna Volvo sé að auka það hlutfall enn frekar.

„Flutningur framleiðslunnar til Belgíu mun einnig lækka verðið á EX30. Í Danmörku er áætlað grunnútgáfan af Volvo EX30 af árgerð 2026 lækki í verði um rúmlega 7.000 danskar krónur sem er yfir 130 þúsund íslenskar krónur.“

Þá segir FÍB að fleiri bílaframleiðendur færi framleiðslu sína til Evrópu um þessar mundir.

„Kínversk fyrirtæki eins og BYD, Chery og Leap Motor eru að hefja framleiðslu í Evrópu til að forðast tolla og styrkja ímynd sína á evrópska markaðnum. BMW hefur framleitt iX3 í Kína en er nú að færa framleiðslu á bílnum einnig til Ungverjalands, og Mini mun framleiða rafmagnsbíla aftur í Bretlandi frá 2026. Polestar dreifir framleiðslu sinni nú á milli Kóreu og Bandaríkjanna.“

Jafnframt er bent á í umfjöllun FÍB að þrátt fyrir að Geely eigi stærstan hlut í Volvo Cars séu höfuðstöðvar fyrirtækisins, hönnun og tækniþróun og hluti framleiðslu enn þá í Gautaborg í Svíþjóð.