Veiðimenn beðnir að gæta hófs við lundaveiðar

Ólíklegt er talið að stofninn þoli veiðar af því magni að standi undir reglulegri sölu til veitingahúsa.

Lundar á klettum.
Lundastofninn er í viðkvæmri stöðu og tilmæli um að takmarka veiðar og sölu á lunda. Mynd: Yves Alarie á Unsplash

Náttúruverndarstofnun og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið til veiðimanna og veitingahúsa um að gæta hófs við nytjun lunda. Sérstaklega er hvatt til þess að endurskoða sölu lundakjöts á veitingastöðum, þar sem veiðar standi ekki undir því sem talist getur sjálfbær nýting. 

Tilmælin eru sett fram í ljósi þess að rannsóknir og vöktun á lundastofninum sýni að tegundinni hafi fækkað mikið við Íslandsstrendur síðustu 30 ár. Fram kemur kemur á vef Náttúruverndarstofnunar að við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar hafi stofnunin fengið tvo erlenda sérfræðinga, Fred A. Johnson og Carl Walters, til að greina áhrif veiða á stofninn. 

Niðurstöður þeirra bendi til þess að áframhaldandi veiðar af sama umfangi og áður séu líklegar til að valda frekari rýrnun stofnsins.

„Fækkunin stafar einkum af hlýnun sjávar, sem dregið hefur úr fæðuframboði, en einnig af uppsöfnuðum áhrifum veiða,“ segir á vef stofnunarinnar.

 Fram kemur að unnið sé að nýju stofnlíkani þar sem tekið verði tillit til sjávarhita og veiðiþols stofnsins, með það að markmiði að hægt verði að spá fyrir um æskilega veiði með nokkurra ára fyrirsjáanleika.

„Slík nálgun er til þess að fallin að stuðla að sjálfbærum veiðum í framtíðinni, en ólíklegt þykir að stofninn þoli veiðar af því magni að þær standi undir reglulegri sölu til veitingahúsa.“