Mikill áhugi er á úthlutunum úr loftslags- og orkusjóði í ár, að því er fram kemur á vef Umhverfis- og orkustofnunar.
„Alls bárust 292 umsóknir frá 188 lögaðilum. Sótt var um 8,9 milljarða króna í heildina sem er um sjöföld eftirspurn eftir því fjármagni sem auglýst var til úthlutunar. Áætluð heildarfjárfesting vegna þessara verkefna eru 49 milljarða króna,“ segir þar.
Fram kemur að auglýst hafi verið eftir verkefnum sem stuðli að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á beina ábyrgð Íslands eða feli í sér nýsköpun og innleiðingu á nýrri tækni á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála.
„Í ár er lögð áhersla á verkefni sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi sjóðsins að halda til að raungerast.“
Verkefnin eru sögð afar fjölbreytt og snerta á ýmsum þáttum orkuskipta, hringrásarhagkerfis og nýsköpunar.
Fjöldi umsókna eftir flokkum:
- Hringrásarhagkerfið: 51
- Innleiðing nýrrar tækni eða nýsköpun: 69
- Orkuskipti í rekstri eða orkusparnaður: 98
- Orkuskipti í samgöngum: 74
Í frétt Umhverfis- og orkustofnunar kemur fram að auglýst hafi verið eftir umsóknum um almenna styrki 23. apríl 2025 og að umsóknarfrestur hafi runnið út 1. júní síðastliðinn. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úthlutnar liggi fyrir í haust.