Mikill ávinningur hlýtst af gjaldfrjálsum skólamáltíðum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu starfshóps sem innviðaráðherra skipaði til að leggja mat á nýtingu og áhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða.
Í umfjöllun á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga er mat starfshópsins meðal annars byggt á spurningakönnunum til foreldra, skólastjórnenda og sveitarfélaga.
Þar er jafnframt vakin á því athygli að sveitarfélög séu leiðandi í kostnaðarþátttöku við skólamáltíðir barna, en ríkið hafi tekið yfir 75 prósent af kostnaðarþátttöku foreldra og forráðamanna barna vegna skólamáltíða í fyrra.
„Sveitarfélögin greiða 25% af því sem foreldrar/forráðamenn greiddu áður, til viðbótar við þann kostnað sem sveitarfélögin stóðu undir vegna skólamáltíða áður en þær urðu gjaldfrjálsar,“ segir þar.

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar eru foreldrar og forráðafólk grunnskólabarna ánægð með verkefnið. Alls kváðust 81% vera mjög eða nokkuð jákvæð með verkefnið en aðeins 7 prósent lýstu sig nokkuð eða mjög neikvæð gagnvart því.
Skólastjórnendur eru jafnframt sagðir sjá mikinn ávinning af verkefninu og lýsi litlum eða engum áskorunum, en þar sem þær séu nefndar snúi þær einkum að áhyggjum af matarsóun og fjármögnun.
„Sveitarfélög sjá einnig ávinning af gjaldfrjálsum skólamáltíðum sem felist í því að öllum börnum eru tryggðar skólamáltíðir óháð efnahag og fleiri börn nýti máltíðirnar.“
Ávinningurinn er þó ekki án áskorana þar sem kostnaður er sagður hafa aukist hjá meirihluta sveitarfélaga, svo sem vegna fjölgunar nemenda sem nýti skólamáltíðir og þess að mótframlag ríkisins nemi einungis hluta af heildarkostnaði, auk þess sem verð á matvöru fari hækkandi.
Starfshópurinn setur fram sex ábendingar til stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga:
- Rannsaka þarf matarsóun og gera íhlutanir til að minnka hana.
- Hafa þarf eftirlit með gæðum máltíða og næringarinnihaldi.
- Tryggja þarf fjármagn fyrir gæðaríkri skólamáltíð.
- Tryggja þarf að til staðar séu upplýsingar sveitarfélaga um raunkostnað.
- Skýra þarf hvort gjaldfrjálsar skólamáltíðir eigi eingöngu við um hádegisverð eða alla málsverði á skólatíma.
- Taka þarf ákvörðun um framhald verkefnisins þegar því lýkur árið 2027.
Innviðaráðherra skipaði starfshópinn í janúar síðastliðnum en í honum áttu sæti: Jóhanna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri í innviðaráðuneytinu, fulltrúi innviðaráðherra og formaður starfshópsins, Þór Hauksson Reykdal, verkefnastjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu, fulltrúi mennta- og barnamálaráðherra, Ellen Alma Tryggvadóttir, doktor í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Helgi Aðalsteinsson, rekstrarhagfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.