Eigendur Nóa Síríus í hópi áhrifamestu fyrirtækja 2025 í Time

Sælgæti hlaup Bubs
Bubs æðið á TikTok stimplaði sænska hlaupið inn á Bandaríkjamarkað í fyrra.

Orkla Snacks, sem á meðal annars Nóa Síríus, er í hópi 100 áhrifamestu fyrirtækja árið 2025 samkvæmt Time. Er Orkla þar í hópi fyrirtækja sem hafa hrist upp í samkeppni á sínu sviði. Önnur fyrirtæki í þeim hópi eru fyrirtæki eins og Substack, sem hefur breytt leiknum í útgáfu, og e.l.f. snyrtivörur sem færa neytendum góða vöru á lægra verði.

Megin ástæðan fyrir velgegni Norðmannanna í Orkla er Tik-Tok æði á síðasta ári í kringum Bubs hlaup, sem er í grunninn sænskt fyrirtæki. Skyndileg aukning var í eftir­spurn eftir þessu frauðkennda hlaupi þegar áhrifavaldar deildu myndskeiðum á samfélagsmiðlum af innkaupaferðum í BonBon sælgætisbúðina þar sem þeir hreinsuðu allar hillur. Í kjölfarið varð skortur á Bubs nammi á heimsvísu sem „kom algjörlega á óvart,“ að sögn Ingvill Berg, forstjóra Orkla Snacks

Þegar smásalar í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Kóreu reyndu að panta þetta litríka nammi, „þá verðum við einfaldlega að segja nei,“ segir Berg. En bjartari tímar eru framundan fyrir sælkerana. Orkla er að auka framleiðslu í Svíþjóð og hefur gert samning við bandaríska Mount Franklin Foods í Texas um að framleiða og dreifa Bubs í Bandaríkjunum.